Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Smári Jökull Jónsson skrifar 23. febrúar 2025 21:20 Það var hart barist á Ítalíu í kvöld. Vísir/Getty Ungverjar unnu sigur á Ítölum í riðli Íslands í undankeppni Evrópumótsins í körfubolta í kvöld. Sigurinn dugir þó skammt því sigur Íslands á Tyrkjum gerir það að verkum að Ungverjar sitja eftir með sárt ennið.
Leikurinn á Ítalíu hefði getað spilað stóra rullu hjá íslenska liðinu því hefði Ísland tapað gegn Tyrkjum í kvöld hefðu strákarnir okkar þurft að treysta á sigur Ítala til að tryggja sæti sitt á EM. Ungverjar voru heldur betur mættir til að selja sig dýrt og með sjálfstraustið í botni eftir sigurinn á Íslandi á fimmtudag. Þeir byrjuðu betur, leiddu með þremur stigum eftir fyrsta leikhlutann og forystan var fimm stig í hálfleik. Í þriðja leikhluta sýndu Ítalir hins vegar mátt sinn og megin. Þeir unnu leikhlutann 23-10 og virtust ætla að sigla sigrinum í höfn með góðri frammistöðu. Svo fór hins vegar ekki. Ungverjar svöruðu fyrir sig í fjórða leikhluta. Þeir hófu hann á 22-5 áhlaupi en heima og leiddu 64-55 þegar þrjár og hálf mínúta var eftir. Ítalir svöruðu fyrir sig og þegar rúmar 40 sekúndur voru eftir munaði aðeins tveimur stigum. Ungverjar voru hins vegar sterkari á svellinu síðustu sekúndurnar. Þeir unnu að lokum 71-67 sigur sem dugir þó skammt því sigur Íslands á Tyrkjum tryggði strákunum okkar sæti í lokakeppni Evrópumótsins og Ungverjar sitja eftir.
Landslið karla í körfubolta Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira