Tillagan greinilega frá „hagsmunahópum í atvinnulífinu“ Vésteinn Örn Pétursson skrifar 5. mars 2025 13:27 Kolbrún Halldórsdóttir er formaður BHM. Vísir/Vilhelm Formaður BHM telur ljóst að hagræðingartillaga til ríkisstjórnar, sem snýst um réttindi opinberra starfsmanna, komi greinilega frá hagsmunahópum í atvinnulífinu. Alvarlegt sé að engir útreikningar til stuðnings tillögunni liggi fyrir.
Meðal þeirra sextíu tillagna sem hagræðingarhópur skilaði af sér til ráðherra í gær er tillaga sem snýr að því að aðlaga lög um opinbera starfsmenn að almennum markaði. Ákvæði um áminningar í starfi sem undanfara brottreksturs verið fellt á brott í ákveðnum tilfellum. Með því myndist meiri sveigjanleiki fyrir ríkisstofnanir til að mæta breyttum aðstæðum. Í kynningu á tillögunum er vísað til umsagnar Vegagerðarinnar, þar sem fram kemur að flókið og tímafrekt geti verið að sanna slaka frammistöðu starfsmanna eða óviðeigandi samskiptahætti sem hafi neikvæð áhrif á þjónustu stofnana, starfsfólk hennar eða bæði. Úr kynningu á tillögum sem hagræðingarhópurinn hefur skilað. Hagsmunahópar í atvinnulífinu Kolbrún Halldórsdóttir er formaður BHM. Innan raða bandalagsins er fjöldi opinberra starfsmanna. „Þessar tillögur eru náttúrulega úti um allt og það er auðvitað eðlilegt, þegar þjóðinni er falið að koma með tillögur af þessu tagi. Ég efast ekkert um það að þessi starfshópur sem settur var á laggirnar, það hafi ekki verið öfundsvert hlutverk sem hann var í. En vissulega eru þarna tillögur sem koma greinilega frá hagsmunahópum í atvinnulífinu,“ segir Kolbrún. Horfir til Norðurlanda Umræða um afnám áminningarskyldunnar sé ekki ný af nálinni. „En það sem er alvarlegt er auðvitað að það liggja engir útreikningar eða greiningar á bak við þessa tilteknu tillögu um þessa áminningarskyldu, og ekkert sagt um það hvað muni sparast í ríkiskerfinu ef þessi áminningarskylda verður afnumin.“ Áttu von á því að ríkisstjórnin taki þetta til greina og láti af þessu verða, eins og þetta birtist í tillögunum? „Ég sé nú og heyri á yfirlýsingu forsætirsáðherra að hún sé þakklát fyrir tillögurnar, og að hún sé þakklát fyrir vinnu þessa starfshóps. Svo segir hún jafnframt að þetta verði allt tekið til skoðunar. Þessar tillögur, eins og þær koma frá starfshópnum, þær hafa ekkert fengið neina umfjöllun í ríkisstjórn enn þá. Þannig að við eigum bara eftir að spyrja að leikslokum í þeim efnum, og höfum sagt að við séum reiðubúin til þess að taka þátt í því samtali,“ segir Kolbrún. „Ef fólk vill miða sig við Norðurlöndin þá er kannski sniðugra að jafna réttindin yfir allan markaðinn, það er að segja þeir sem hafa ákveðin réttindi sem eru talin skynsamleg á opinberum markaði, að það verði þá látið gilda um almenna markaðinn líka,“ segir Kolbrún.
Rekstur hins opinbera Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Skila sex hundruð milljónum Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að falla frá ráðstöfun 600 milljón króna af fjárheimildum ársins 2025 og lagt til við fjármála- og efnahagsráðherra að horft verði til þess við gerð frumvarps til fjáraukalaga. 5. mars 2025 11:23 Spyr hvort þetta sé raunveruleg hagræðing eða tilfærsla á útgjöldum Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist munu styðja allar þær hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar sem miði að því að minnka ríkisrekstur hér á landi og draga úr ríkisbákninu. Þó spyr hún hvort að tillögurnar feli í sér raunverulega hagræðingu eða tilfærslu á útgjöldum. 5. mars 2025 08:56 Gera ráð fyrir sparnaði upp á meira en 70 milljarða Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og formaður hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar kynntu sextíu hagræðingartillögur hópsins á blaðamannafundi rétt í þessu. Ráðgert er að tillögurnar geti falið í sér sparnað upp á 71 milljarð króna á árunum 2026 til 2030. 4. mars 2025 15:27 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Sjá meira
Skila sex hundruð milljónum Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að falla frá ráðstöfun 600 milljón króna af fjárheimildum ársins 2025 og lagt til við fjármála- og efnahagsráðherra að horft verði til þess við gerð frumvarps til fjáraukalaga. 5. mars 2025 11:23
Spyr hvort þetta sé raunveruleg hagræðing eða tilfærsla á útgjöldum Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist munu styðja allar þær hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar sem miði að því að minnka ríkisrekstur hér á landi og draga úr ríkisbákninu. Þó spyr hún hvort að tillögurnar feli í sér raunverulega hagræðingu eða tilfærslu á útgjöldum. 5. mars 2025 08:56
Gera ráð fyrir sparnaði upp á meira en 70 milljarða Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og formaður hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar kynntu sextíu hagræðingartillögur hópsins á blaðamannafundi rétt í þessu. Ráðgert er að tillögurnar geti falið í sér sparnað upp á 71 milljarð króna á árunum 2026 til 2030. 4. mars 2025 15:27