Frábær fermingartilboð á hágæða sængum og koddum Dún og fiður 4. apríl 2025 09:26 Hlý og vönduð sæng er ein besta fermingargjöfin sem völ er á segir Anna Bára Ólafsdóttir, eigandi Dún og fiður. „Slík fermingargjöf eldist vel og lengi með fermingarbarninu og bætir án efa svefn þess um leið." Þessa dagana býður Dún og fiður upp á frábær fermingartilboð á vönduðum sængum og koddum og fallegum rúmfötum í ýmsum stærðum og litum. Mynd/Eggert Jóhannesson. „Ein besta fermingargjöfin sem völ er á að mínu mati er hlý og vönduð sæng,“ segir Anna Bára Ólafsdóttir, eigandi Dún og fiður, sem er staðsett á Laugavegi 86 í Reykjavík. „
Slík fermingargjöf eldist vel og lengi með fermingarbarninu og bætir án efa svefn þess um leið. Þessa dagana bjóðum við upp á frábær fermingartilboð á vönduðum sængum og koddum og fallegum rúmfötum í ýmsum stærðum og litum.“ Hún segir ömmur og afa vera sérstaklega dugleg við að gefa barnabörnunum sínum slíkar gjafir sem sanni enn frekar gildi sitt sem sígilda gjöf. „Sængur og koddar hafa verið vinsælustu fermingargjafirnar hjá okkur frá árinu 1959, eða í næstum sjö áratugi. Þar er ég helst að tala um svanadúnssængina sem er í afar háum gæðaflokki. Svona sængur geta auðveldlega enst í 20-25 ár ef hugað er að réttri umhirðu, með reglulegri hreinsun, með því að setja á nýtt dúnhelt ver og með því að bæta við 100-200 grömmum af dún í sængina eftir um 10-12 ára notkun.“ Myndir/Hulda Margrét. Dún og fiður framleiðir flestar dúnsængur og kodda sem verslunin selur en vörurnar eru ársstimplaðar og merktar Dún og fiður. „Þannig má sjá framleiðsluárið þegar varan kemur í hreinsun eða endurnýjun en við endurnýjun á framleiðsluvöru Dún- og fiðurhreinsunarinnar er vörunni gefinn nýr ársstimpill,“ segir Anna Bára en vörur verslunarinnar innihalda ýmist æðardún, gæsadún í tveimur flokkum eða andardún. Auk þess er sjálfbærni höfð að leiðarljósi þar sem er horft er til allra þátta framleiðslunnar. Mynd/Hulda Margrét.Mynd/Hulda Margrét.Mynd/Hulda Margrét. Dún og fiður er fjölskyldufyrirtæki sem hefur þjónustað Íslendinga frá árinu 1959 og hefur alla tíð lagt mikla áherslu á vandaðar vörur og úrvals þjónustu. Nánari upplýsingar má finna á vef Dúns og fiðurs. Verslunin er staðsett á Laugavegi 86 í Reykjavík og er opin mánudag til föstudags frá kl. 10-18 og á laugardegi frá kl. 12-16.
Fermingar Svefn Mest lesið Sigga Ózk keppir í Ungfrú Íslandi Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Óbilandi trú á eigin ágæti Gagnrýni Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira