Tottenham sendi Southampton niður í b-deildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. apríl 2025 15:00 James Maddison fagnar öðru marka Brennan Johnson í 3-1 sigri Tottenham Hotspurs á Southampton. Getty/Sebastian Frej Southampton féll úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag eftir tap á móti Tottenham á útivelli. Tottenham vann leikinn 3-1. Eftir sigur Úlfanna í gær varð ljóst að Southampton varð að vinna í dag til að eiga möguleika á því að bjarga sér frá falli. Það tókst ekki, liðið er lang neðst með tíu stig og 22 stigum frá öruggu sæti þegar aðeins 21 stig er eftir í pottinum. Velski knattspyrnumaðurinn Brennan Johnson skoraði tvívegis fyrir Tottenham í fyrri hálfleiknum. Fyrra markið skoraði hann á 13. mínútu eftir sendingu frá Djed Spence en það síðara á 42. mínútu eftir sendingu frá James Maddison. Lucas Bergvall skoraði reyndar mark á 33. mínútu en Varsjáin dæmdi mark Svíans af vegna rangstöðu. Mateus Fernandes minnkaði muninn í 2-1 á 90. mínútu en Southampton tókst ekki að bæta við fleiri mörkum og fall í ensku b-deildina er því staðreynd. Mathys Tel gerði hlutina enn verri með því að innsigla sigurinn með marki úr vítaspyrnu á sjöttu mínútu í uppbótatíma. Þetta var mjög langþráður sigur hjá Tottenham sem hafði spilað fjóra deildarleiki í röð án þess að fagna sigri. Enski boltinn Fótbolti