Þrjár landsliðskonur fengu áletrað úr frá KSÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. apríl 2025 12:01 Helga Helgadóttir og Þorvaldur Örlygsson sjást með landsliðskonunum Alexöndru Jóhannsdóttur, Söndru Maríu Jessen og Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur. Knattspyrnusamband Íslands Formaður og varaformaður Knattspyrnusambands Íslands komu færandi hendi á hótel íslenska kvennalandsliðsins í gær.
Þrír leikmenn A landsliðs kvenna í fótbolta hafa nýlega náð fimmtíu leikja áfanga og fengu flotta viðurkenningu fyrir afrek sitt í gær. Alexandra Jóhannsdóttir lék sinn fimmtugasta leik þegar íslenska liðið lék gegn Sviss í febrúar. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sandra María Jessen náðu síðan áfanganum í leiknum við Noreg á Þróttarvelli á föstudaginn var. Allar fengu þær afhent áletrað úr samkvæmt reglugerð KSÍ um veitingu landsliðs- og heiðursviðurkenninga. Það voru Helga Helgadóttir varaformaður KSÍ og Þorvaldur Örlygsson formaður sem afhentu viðurkenninguna. Sandra María er þrítug og lék sinn fyrsta landsleik á móti Ungverjum 16. júní 2012. Hún skoraði í fyrsta leiknum eitt af sex mörkum sínum fyrir íslenska landsliðið. Alexandra er 25 ára og lék sinn fyrsta landsleik á móti Skotlandi 21. janúar 2019. Hún hefur einnig skorað sex mörk fyrir landsliðið. Karólína Lea er yngst af þeim þremur en hún heldur upp á 24 ára afmælið sitt í ágúst. Karólína lék sinn fyrsta landsleik á móti Finnlandi 17. júní 2019. Karólína hefur skorað ellefu mörk fyrir íslenska landsliðið en hún var hársbreidd frá því að bæta við marki í jafnteflinu við Noreg. Íslenska landsliðið er að undirbúa sig fyrir leik á móti Sviss á Þróttarvelli á þriðjudaginn.
Landslið kvenna í fótbolta KSÍ Þjóðadeild kvenna í fótbolta Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir Bein útsending: Púlsinn tekinn í KR-heimilinu City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Sjá meira