Kristrún og Guðmundur leiða áfram flokkinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. apríl 2025 17:23 Kjörin stjórn Samfylkingarinnar. Samfylkingin Kristrún Frostadóttir var endurkjörin formaður Samfylkingarinnar og hlaut 98,67 prósent greiddra atkvæða. Guðmundur Árni og Jón Grétar voru báðir endurkjörnir í embætti varaformanns og gjaldkera.
Kristrún var ein í framboði til formanns en hún kom inn í starf Samfylkingarinnar í aðdraganda þingkosninganna árið 2021 og hefur verið formaður frá árinu 2022. Að sögn Arnars Þórs Ingólfssonar, starfsmanni þingflokksins, voru 1,33 prósentin sem eftir stóðu „örfáir auðir seðlar.“ Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar, var sá eini sem sóttist eftir kjöri sem varaformaður og var því sjálfkjörinn. Það lá fyrir þegar framboðsfresturinn rann út fyrr í dag. Jón Grétar Þórsson, gjaldkeri Samfylkingarinnar, sóttist einnig eftir endurkjöri og bauð enginn annar sig fram í embættið. Hann var því sjálfkjörinn. Bæði Guðmundur og Jón Grétar hafa sinnt embættunum frá árinu 2022. Tveir voru í framboði til ritara, Guðný Birna Guðmundsdóttir, oddviti í Reykjanesbæ, og Gylfi Þór Gíslason, formaður Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar. Guðný Birna hlaut kjör sem ritari. Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi þingmaður, ráðherra og varaformaður flokksins, var ein í framboði til formanns framkvæmdastjórnar og var hún því sjálfkjörin. Fréttin hefur verið uppfærð.
Samfylkingin Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira