Skýjað og rigning af og til Atli Ísleifsson skrifar 2. maí 2025 07:09 Hiti á landinu verður á bilinu átta til þrettán stig, en aðeins svalara við norðurströndina. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, þar sem verður skýjað og dálítil súld eða rigning af og til. Þó verður bjart að mestu suðaustantil.
Á vef Veðurstofunnar segir að eftir hádegi snúist í norðlæga átt og dragi hægt úr vindi. Það mun létta til á vestan- og sunnanverðu landinu, en áfram verður dálítil væta fyrir norðan og austan. Hiti verður á bilinu átta til þrettán stig, en aðeins svalara við norðurströndina. „Á morgun verður hæg breytileg átt og víða bjart og sólríkt veður, en skýjað og sums staðar lítilsháttar rigning á suðaustanverðu landinu. Hiti 9 til 15 stig yfir daginn. Á sunnudag gera spár ráð fyrir suðvestan 5-13 m/s. Skýjað með köflum og dálítil rigning eða súld vestanlands, hiti 6 til 11 stig. Lengst af þurrt á austanverðu landinu og hiti 12 til 18 stig. Í byrjun næstu viku er útlit fyrir suðlægar áttir. Rigning af og til og hiti 6 til 11 stig á sunnan- og vestanverðu landinu, en bjart með köflum og heldur hlýrra norðaustantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Hæg breytileg átt og yfirleitt léttskýjað. Hiti 7 til 14 stig yfir daginn. Á sunnudag: Suðvestan 5-13 m/s, hvassast norðvestantil. Lítilsháttar væta, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Austurlandi. Á mánudag: Sunnan 3-8, en 8-13 á vestanverðu landinu. Skýjað og rigning eða súld öðru hverju, en bjart með köflum á Norður- og Austurlandi. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag og miðvikudag: Suðlæg átt, rigning af og til og hiti 8 til 12 stig, en bjartviðri norðaustantil á landinu með hita að 18 stigum.
Veður Mest lesið Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent Brotist inn hjá Alberti Innlent „Ég var skelfingu lostinn“ Innlent Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Fleiri fréttir Stífri norðanátt beint til landsins og vegir lokaðir Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Færð geti víða spillst hratt Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Gular veðurviðvaranir í kortunum Köldu lofti beint til landsins Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Appelsínugul viðvörun á morgun Vara við stórhríð á Austurlandi Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna snjókomu Snjókoma á höfuðborgarsvæði í dag og á morgun Úrkomusvæði með snjókomu fer yfir vesturhelming landsins Gular veðurviðvaranir á Austurlandi Snýst í norðanátt og snarpar hviður austantil Útlit fyrir lægðagang og umhleypinga Hvöss austanátt fylgir alldjúpri lægð í dag Gul veðurviðvörun á Suðausturlandi Hitinn að skríða yfir frostmark sunnan heiða Herðir á frosti í kvöld Él og snjókoma norðan- og austantil Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Sjá meira