Viðskipti innlent

Vilja að stjórn­völd greiði leið kísilversins á Bakka

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Tilkynnt var um tímabundna rekstrarstöðvun kísilversins á Bakka í gærkvöldi.
Tilkynnt var um tímabundna rekstrarstöðvun kísilversins á Bakka í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm

Áttatíu missa vinnuna í kísilverinu á Bakka ef verður af tímabundinni rekstrarstöðvun, sem tilkynnt var í gær. Forseti sveitarstjórnar heldur í vonina að lausn finnist en til þess þurfi stjórnvöld að grípa til aðgerða gegn ódýrum innfluttum kínverskum kísilmálmi.

Tilkynnt var í gær um tímabundna rekstrarstöðvun á verksmiðju PCC BakkaSilicon hf. á Húsavík frá og með miðjum júlímánuði. Ástæðan er sögð erfiðleikar á mörkuðum fyrir kísilmálm og raskanir sem rekja megi til tollastríðs.

„Við höfum verið í góðu samtali við forstjóra PCC og hugur okkar er hjá því fólki sem missir vinnuna. Ástæður eru auðvitað fyrst og fremst erfið staða á mörkuðum vörunnar kísilmálms, sem PCC er að framleiða. Þetta hefur auðvitað mikil áhrif á samfélagið, fjárhag sveitarfélagsins og atvinnulíf allt hérna á svæðinu,“ segir Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar Norðurþings. 

Áttatíu missa vinnuna ef kemur til rekstrarstöðvunar, sem Hjálmar segir eins og ef 3.500 manns myndu missa vinnuna í Reykjavík.

Þrýsta á stjórnvöld

Fram kemur í tilkynningu PCC að ódýr innflutningur á niðurgreiddum kísilmálmi, sér í lagi frá Kína, með lakari sjálfbærni- og umhverfisstöðlum hafi haft mikil áhrif á markaðsverð á Íslandi. Félagið hefur kært innflutning á kísilmálmi á undirverði hingað til lands til fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sem fjallar nú um málið.

Hjálmar Bogi, forseti sveitarstjórnar, var varaþingmaður á síðasta kjörtímabili.Vísir/Vilhelm

„Við höfum verið að þrýsta á stjórnvöld, ráðherra og þingmenn til að bregðast við þar sem því verður við komið, sem tryggir samkeppnishæfni verksmiðjunnar. Það eru aðgerðir sem stjórnvöld geta gripið til, sem PCC hefur tilkynnt um. Við erum að vonast til að stjórnvöld komi með okkur í þetta verkefni þannig að stöðvunin verði sem styst, hún verði tímabundin og verksmiðjan fari aftur af stað.“

Hann segist ekki hafa rætt við starfsfólk en sveitarfélagið hafi verið í samtali við forstjóra PCC og samtalið hafi verið gott. Hann segist hafa trú á að lausn finnist í málinu.

„Við trúum því bara að það verði þannig að menn nýti þessa fjárfestingu sem þessi verksmiðja er til þess að skapa tekjur,“ sagði Hjálmar Bogi.


Tengdar fréttir

Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum

PCC BakkiSilicon hf. hefur tilkynnt um tímabundna rekstrarstöðvun verksmiðju sinnar á Húsavík, frá og með miðjum júlí. Ástæðan er sögð erfiðleikar á mörkuðum fyrir kísilmálm og raskanir sem rekja megi til tollastríðs. Um 80 manns munu missa vinnuna.

Gefa sér þrjá mánuði til að leggja drög að Coda-stöð á Bakka

Stefnt er að því að lokið verði við helsta undirbúning að kolefnisförgunar- og móttökustöð á Bakka við Húsavík eftir tólf vikur samkvæmt viljayfirlýsingu sem Norðurþing og Carbfix hafa skrifað undir. Gert er ráð fyrir að matsáætlun umhverfismats vegna stöðvarinnar verði skilað strax í sumar.

Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing

Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Norðurþings segir fregnir af mögulegri rekstrarstöðvun PCC á Bakka gríðarlegt áhyggjuefni. Bæjaryfirvöld fylgist vel með stöðunni og eigi í samtali við forsvarsmenn verksmiðjunnar og stjórnvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×