Innherji

„Af hverju vilja stjórn­völd ekki fá inn­við af­hentan á silfur­fati eftir tuttugu ár?“

Hörður Ægisson skrifar
Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Birtu segir að það eigi enn eftir að koma í ljós hvort lífeyrissjóðum verði treyst til að byggja upp innviði og afhenda þá síðan aftur eftir tiltekinn árafjölda þegar þeir hafa greitt alla fjárfestinguna til baka.
Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Birtu segir að það eigi enn eftir að koma í ljós hvort lífeyrissjóðum verði treyst til að byggja upp innviði og afhenda þá síðan aftur eftir tiltekinn árafjölda þegar þeir hafa greitt alla fjárfestinguna til baka. Vísir

Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs furðar sig á því „af hverju í ósköpunum“ stjórnvöld hafi ekki farið meira þá leið við uppbyggingu mannvirkja hér á landi, eins og var gert í tilfelli Hvalfjarðarganga, að efna til samstarfs við fjárfesta og geta þannig fengið afhentan innvið á silfurfati til sín eftir kannski tuttugu ár þegar einkaaðilar séu búnir að reka hann í samræmi við reglur. Hann situr núna í starfshópi um mögulega stórfellda íbúðauppbyggingu í Úlfársdal en segir að það eigi eftir að koma í ljóst hvort lífeyrissjóðum verði treyst til að hafa aðkomu að því verkefni.


Tengdar fréttir

Stjórnvöld vilja ekki bjóða erlendum fjár­festum upp á sér­stöðu Ís­lands

Ef það er raunverulega markmiðið að auka beina erlenda fjárfestingu og skapa umhverfi sem eflir hlutabréfamarkaðinn þá væri réttast að selja minnihluta í Landsvirkjun samhliða skráningu á markað og eins opna meira á erlent eignarhald í sjávarútvegi, að mati framkvæmdastjóra eins stærsta lífeyrissjóðs landsins. Þótt Kauphöllin fari stækkandi þá endurspegli hún ekki vel íslenska hagkerfið á meðan stjórnvöld halda verndarhendi yfir þeim atvinnugreinum sem eru með sérstöðu á heimsvísu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×