Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Atli Ísleifsson skrifar 11. júní 2025 07:25 Búast má við rigningu víða um land í nótt. Vísir/Vilhelm Von er á rigningu sunnantil á landinu í dag en skil lægðar sem er alllangt suður í hafi nálgast nú landið. Þurrt verður á norðanverðu landinu fram á kvöld.
Á vef Veðurstofunnar segir að einnig fari að blása með suðurströndinni og verða allhvassir vindstrengir, þrettán til átján metrar á sekúndu. Slíkur vindur getur verið varasamur fyrir þau ökutæki sem viðkvæmust eru fyrir vindi. Annars staðar á landinu er búist við austan fimm til þrettán metrum á sekúndu. Hlýjast verður væntanlega á norðanverðu landinu og á Vestfjörðum eða kringum 15 stig þegar best lætur, en annars verður hitinn víða á bilinu sjö til fjórtán stig. „Búast má við rigningu víða um land í nótt, aðfaranótt fimmtudags og ennþá væta allvíða fram eftir degi. Þegar líða fer að fimmtudagskvöldi styttir væntanlega upp. Þar sem rofar til fyrr gæti hiti náð sér á strik, líkur eru á því að það gerist á Austurlandi seinnipartinn á morgun með sunnan golu og 17-18 stiga hita, sem yrði þá líklega hámarkshitinn á landinu þann daginn,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Skýjað að mestu og dálítil væta með köflum, en yfirleitt þurrt um kvöldið. Hiti 7 til 17 stig, svalast norðvestantil. Á föstudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-8 og bjartviðri, en skýjað og þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hiti frá 6 stigum við norðausturströndina, upp í 18 stig suðvestanlands. Á laugardag: Austlæg átt 3-8. Skýjað, en úrkomulítið við suðausturströndina, annars skýjað með köflum. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Vesturlandi. Á sunnudag: Breytileg átt og væta af og til í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Austlæg átt og rigning um mest allt land. Áfram fremur milt. Á þriðjudag (lýðveldisdagurinn): Útlit fyrir norðaustanátt með rigningu, einkum um landið norðanvert. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast um landið sunnanvert.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira