Íslenski boltinn

Ekkert lið vill fara með ó­bragð í munni frá tíundu um­ferð

Aron Guðmundsson skrifar
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, hefur séð lið sitt taka hvert framfaraskrefið á fætur öðru í Bestu deildinni í ár þar sem að Fram er nýliði. Liðið er á þriggja leikja sigurgöngu og hefur unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum í deildinni. Í kvöld tekur Fram á móti Þrótti R. sem er eitt þeirra þriggja liða sem hefur halað inn flestu stigum í deildinni til þessa.
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, hefur séð lið sitt taka hvert framfaraskrefið á fætur öðru í Bestu deildinni í ár þar sem að Fram er nýliði. Liðið er á þriggja leikja sigurgöngu og hefur unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum í deildinni. Í kvöld tekur Fram á móti Þrótti R. sem er eitt þeirra þriggja liða sem hefur halað inn flestu stigum í deildinni til þessa. Vísir/Samsett mynd

Tíunda um­ferð Bestu deildar kvenna hefst í kvöld með afar at­hyglis­verðum leik Fram og Þróttar Reykja­víkur. Fram hefur verið á mikilli siglingu á meðan að Þróttur, sem er með jafn­mörg stig og topp­lið Breiða­bliks, hefur hikstað. Fram­undan er langt hlé í deildinni og er þjálfari Fram sammála því að ekkert lið vilji fara með tap á bakinu inn í þá pásu.

„Leggst bara mjög vel í mig. Alltaf gott að fá heima­leiki, það gefur okkur sjálf­s­traust en við gerum okkur líka grein fyrir því að við erum að spila á móti mjög öflugu og vel þjálfuðu liði Þróttar,“ segir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Ég býst við hörku leik, jafnari leik heldur en varð raunin í 1.um­ferðinni þar sem að mér fannst lið Þróttar bara tölu­vert sterkara en mitt lið. Ég býst við jafnari leik í dag og mikil eftir­vænting fyrir honum.“

Um­ræddum leik í 1.um­ferð deildarinnar á AVIS vellinum í Laugar­dal, sem lesa má um hér í umfjölluninni að ofan, lauk með 3-1 sigri Þróttar en mikið vatn hefur runnið til sjávar þá. Þróttarar vissu­lega verið dug­legar að ná inn sigrum en lið Fram hefur tekið hvert fram­fara­skrefið á fætur öðru að mati Óskars Smára og býr nú að þriggja leikja sigur­göngu komandi inn í leik kvöldsins.

„Eins og flestir vita er ekki mikil úr­vals­deildar reynsla í liðinu okkar en ég hef alltaf bent á það á móti að hungrið, viljinn, gæði og geta leik­manna sé til staðar. Stelpurnar hafa tekið mjög stór og fag­leg skref á stuttum tíma. Aðlagað sig vel að því um­hverfi sem Besta deildin er því hún er erfiðari og sterkari en Lengju­deildin. Það hefur alltaf verið okkar ein­kenni að við viljum vera betri í dag en við vorum í gær, stelpurnar hafa tekið gríðar­legum fram­förum sem ein­staklingar og lið. Við erum á mikilli upp­leið.“

Býst við mjög hörðum Þrótturum

Eftir að hafa verið á mikilli siglingu bæði í deild og bikar hefur lið Þróttar aðeins hikstað, þær töpuðu fyrir Val í átta liða úr­slitum Mjólkur­bikarsins á dögunum og í kjölfarið fylgdi tap á úti­velli gegn Stjörnunni í Bestu deildinni.

Gerir það þær að hættu­legri and­stæðingi komandi inn í leik kvöldsins?

„Það getur farið á báða vegu. Þær hafa tapað tveimur leikjum í röð og ég býst við þeim mjög, mjög, mjög ag­gressívum. Þær eru mjög agressívar á venju­legum degi en ég býst við þeim enn þá meira ag­gressívari í kvöld. Í þessum tveimur tap­leikjum þeirra sér maður hins vegar ákveðna þætti sem við getum nýtt okkur í kvöld. Þetta getur haft áhrif á sjálf­s­traustið og aukið pressuna á þær þar sem að þær eru í topp­baráttu. En þetta getur líka haft þau áhrif að þær mæta tvíefldar til leiks í kvöld. Við getum búist við báðu frá Þrótturum í kvöld en fyrir mig snýst þetta um það hvað liðið mitt ætlar að gera, ekki Þróttur. Við erum undir­búin fyrir bæði.“

Hart barist í leik Fram og Þróttar R. í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.Vísir/Anton Brink

Verið að tala inn það sama í öllum liðum

Leikir tíundu um­ferðar Bestu deildar kvenna eru þeir síðustu fyrir rúm­lega mánaðar hlé í deildinni vegna EM í Sviss og því enn mikilvægara að ná inn sigri í kvöld til þess að fara með góða til­finningu inn í það hlé.

„Hundrað pró­sent sammála því. Það er að koma, að mér finnst, bara góð pása. Verðskulduð og góð pása og það er alveg gríðar­lega mikilvægt. Við erum á gríðar­legri siglingu, höfum unnið fimm af síðustu sex leikjum sem við höfum spilað í deildinni. Við erum á mikilli siglingu og viljum klára þá siglingu fyrir EM fríið með góðri frammistöðu sem getur skilað okkur góðum úr­slitum í kvöld á móti gríðar­lega sterku liði Þróttar. Ég held að öll lið sem fara inn í þessa um­ferð tali það inn að enda fyrri part tíma­bils, ef svo má að orði komast, á þeim góðu nótum að geta haldið inn í fríið með sigur á bakinu.“

Leikur Fram og Þróttar R. á Lambhagavellinum í Bestu deild kvenna hefst klukkan sex í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×