Lífið

„Þetta er auð­vitað klisja en hann var full­kominn“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Nýgift og glæsileg! Jóhanna Gunnþóra og Dalmar Ingi giftu sig 14. júní síðastliðinn.
Nýgift og glæsileg! Jóhanna Gunnþóra og Dalmar Ingi giftu sig 14. júní síðastliðinn. Blik studio

„Við Dalli erum ekki þekkt fyrir hálfkák svo við ákváðum snemma að taka dansinn alla leið og tókum Dirty Dancing,“ segir Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir. Hún og hennar heittelskaði Dalmar Ingi Daðason gengu í hjónaband núna í júní og vissu strax að þau vildu halda miðbæjarbrúðkaup. Sólin var heiðursgestur allan daginn og dagurinn algjörlega fullkominn.

Jóhanna Gunnþóra er fædd árið 1993 og starfar í viðskiptaráðgjöf hjá KPMG.

Dalli, eins og hann er alltaf kallaður, vinnur sem verkefnastjóri hjá stefnumótaforritinu Smitten. Hjúin hafa verið par í mörg ár og eiga saman tvö börn en þau gengu í hjónaband 14. júní síðastliðinn í Dómkirkjunni og héldu veisluna í Gamla Bíói.

Falleg fjölskylda, Jóhanna Gunnþóra og Dalmar Ingi ásamt börnum þeirra tveimur Guðmundi Daða og Ellen Þóru.Blik studio

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Við trúlofuðumst yfir morgunbollanum á Þorláksmessu 2023. Við vorum bara tvö heima og Dalli nýtti tækifærið í þögninni til þess að biðja mín. 

Hann hafði pakkað hringnum inn í pakka sem ég hélt að væri kassi utan af jólakúlu, en þá leyndist annar minni kassi með hring inni í honum. Hann kom mér mjög á óvart og hefði hvorki getað valið betri stað né stund!

Dalmar Ingi bað Jóhönnu Gunnþóru á fullkomnri stund.Aðsend

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við byrjuðum að skipuleggja brúðkaupið mjög fljótlega eftir trúlofun og í febrúar vorum við búin að negla kirkju og veislusal. Við vorum ekki mikið að tvínóna við þetta.

Parið var ekkert að tvínóna við að skipuleggja brúðkaup eftir trúlofun.Blik studio

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn. Það var lítið sem ekkert stress þennan dag. Við stelpan mín gerðum okkur til hjá foreldrum mínum ásamt tengdamömmu og nánustu vinkonum. Dalli gerði sig til með pabba sínum, bróður og sínum vinum.

Við pabbi vorum síðan sótt á brúðarbílnum sem keyrði okkur í kirkjuna og við tókum bensín í rólegheitum á leiðinni, sem sagt frekar slök. 

Athöfnin var svo yndisleg og sólin skein allan daginn.

Veislan gekk mjög smurt, það voru svo mörg frábær atriði og heilt yfir svo góð stemning, allir í góðu skapi í góða veðrinu. 

Við pöntuðum karaoke herbergi eftir partýið og sjáum ekki eftir því, það voru svo margir til í að halda áfram í sameiningu í stað þess að tvístrast og við tímdum ekki að sleppa því heldur og þetta lengdi því kvöldið um nokkra tíma!

Það var mikil stemning í hópnum og eftir að veislusalurinn lokaði fóru Jóhanna og Dalmar í karaoke með bestu vinunum.Blik studio

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Já, við vorum mjög samstíga í því hvernig við vildum hafa þetta. Við vildum bæði hafa stórt brúðkaup og halda gott partý með okkar besta fólki. Við vildum bæði gifta okkur í kirkju og vorum fljót að ákveða að hafa gott miðbæjarbrúðkaup.

Þemað vildum við hafa í takt við staðinn sem við völdum. Svo þetta varð tímalaust og látlaust brúðkaupsþema með smáatriðum sem gáfu sumarbrúðkaup til kynna, eins og blómin í léttum og litríkum stíl í anda júnímánaðar. Perlur eru líka júní steinninn svo ég skartaði þeim.

Hjónin voru undir miklum innblæstri júní mánaðar og miðbæjar umhverfisins.Blik studio

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Ég skoðaði samfélagsmiðilinn Pinterest rosa mikið og fékk mikið af hugmyndum þaðan. Mig langaði að hafa þetta sumarlegt og ég elska ljósa liti svo þaðan kom valið á blómaskreytingum.

Ég fann meira að segja skóna mína á Pinterest sem mamma sótti í einni ferð til Bandaríkjanna. Þar skoðaði ég ógrynni af kjólum og slörum, endaði svo á því að láta sauma slörið hjá Eðalklæðum og gæti ekki verið ánægðari með það. 

Svo mátaði ég kjóla hjá Loforð en fann svo kjól á netinu sem þær gátu pantað fyrir mig. Það var algjör snilld að vera í öruggum höndum hjá þeim.

Slörið var sérsaumað frá Eðalklæðum.Blik studio

Hvað stendur upp úr?

Athöfnin stóð upp úr því hún var svo persónuleg og stundin okkar Dalla. Stelpan okkar stóð sig líka með prýði sem hringaberi.

Ellen Þóra dóttir hjónanna var hringaberi.Blik studio

Presturinn tengist okkur fjölskylduböndum svo það var einstakt að hann væri að gefa okkur saman. Vinir okkar sungu og spiluðu jafnframt undir í athöfninni sem gerði hana extra persónulega.

Athöfnin stendur upp úr hjá hjónunum og Guðmundur Daði og Ellen Þóra stóðu sig eins og hetjur.Blik studio

Hverjir sáu um veislustjórn og hverjir voru með skemmtiatriði?

Veislustýrurnar voru Ingileif og María og þær stóðu sig svo vel, við hefðum ekki getað beðið um betri veislustjórn. Þær eru jafnframt þær sem kynntu okkur Dalla og eru því miklar örlagadísir og stór partur af okkar lífi.

Foreldrar okkar, systkini, frændsystkin og margir okkar vinir voru með frábær atriði og Gamla bíó eru fagmenn fram í fingurgóma að halda svona gott partý.

Veislan var haldin í Gamla bíói og stemningin var gríðarlega góð. Ingileif og María, lengst til hægri, voru veislustýrur.Blik studio

Hvað voru margir gestir?

Þetta var 140 manna veisla.

140 manns fögnuðu með hjónunum.Blik studio

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Já, fullt af heillaóskum frá alls konar fólki sem voru tekin upp á myndband, eins og frá forsætisráðherra og Chris Harrison úr Bachelor. Og geggjað opnunarlag um okkur Dalla í boði veislustýranna sem við höfðum ekki hugmynd um að yrði!

Hvernig gekk að velja kjólinn? Varstu með fataskipti?

Það gekk vel að velja kjólinn, ég fór í Loforð að máta og fann strax að mig langaði í látlaust og tímalaust snið. Ég fann hins vegar ekki kjólinn þar heldur á heimasíðu By Malina. Þær hjá Loforð gátu pantað kjólinn fyrir mig og síðan fékk ég Eðalklæði til að laga hann aðeins að mér. Ég var rosalega ánægð með hann.

Við Dalli erum ekki þekkt fyrir hálfkák svo við ákváðum snemma að taka dansinn alla leið og tókum Dirty Dancing dansinn. 

Ég hefði ekki getað dansað í brúðarkjólnum svo ég fann kjól hjá Andreu by andreu sem var fullkominn fyrir atriðið.

Jóhanna Gunnþóra skipti um kjól fyrir dansinn og þau tóku alvöru Dirty Dancing spor!Blik studio

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Ég er algjör jafnt og þétt manneskja svo mér finnst það kannski það helsta sem ég gæti gefið ráð um. 

Við upplifðum aldrei mikið stress því við vorum að skipuleggja þetta hægt og rólega, keyptum hringa á afsláttardögum og annað eins gegnum mánuðina til að dreifa álaginu. Dagurinn gekk líka rosalega smurt fyrir sig.

Jóhanna Gunnþóra mælir með að skipuleggja brúðkaupið jafnt og þétt og velja veislustjórana vel!Aðsend

Og veljið veislustjóra vel, það getur lyft veislunni upp á svo hátt plan að hafa frábæra veislustjórn, eins og í okkar tilfelli. 

Eins sé ég ekki eftir að hafa valið góða ljósmyndara til að fanga þennan fallega dag, þau hjá Blik eru algjörir fagmenn og tóku svo fallegar myndir í okkar anda.

Ætlið þið í brúðkaupsferð?

Já, planið er að fara á einhvern notalegan og hlýjan stað næsta vor, helst þar sem við náum að tvinna hlaupum saman við slökun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.