Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Stefán Árni Pálsson skrifar 25. júní 2025 10:02 Bragi mun leika með nýliðum Ármanns á næsta tímabili í Bónus-deild karla. vísir/sigurjón Bragi Guðmundsson ákvað að semja við nýliða Ármanns í Bónus-deild karla fyrir næsta tímabil. Hann ætlar sér stóra hluti í Laugardalnum næsta vetur.
Bragi er 21 árs gamall bakvörður, uppalinn í Grindavík en hefur einnig leikið með Haukum hér á landi. Hann spilaði svo með Penn háskólanum í Bandaríkjunum en ákvað að taka sér frí frá námsbókunum eftir áramót og kláraði tímabilið með Grindavík, sem datt út í oddaleik í undanúrslitum gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar. Bragi lék 16 leiki með Grindavík á síðasta tímabili. Hann skoraði í þeim 5,1 stig að meðaltali í leik. En hjá Ármanni gæti hann fengið fleiri mínútur. „Ég ætlaði að fara í Ármann og fá stærra hlutverk og þroskast aðeins sem leikmaður og fá vonandi fleiri mínútur. Ég talaði við Jóa [Jóhann Þór Ólafsson, þjálfara Grindavíkur] eftir tímabilið og sagði að ég væri ekki alveg að fá það hlutverk sem ég vildi. Ég fæ vonandi að sanna mig í ás, tvist og þrist hjá Ármanni,“ segir Bragi í Sportpakkanum á Sýn í gær. „Auðvitað var þetta erfitt að fara frá Grindavík en ég gerði bara það sem er best fyrir mig.“ Bæði karlalið Ármanns og kvennalið félagsins komust upp á síðasta tímabili. „Það er geggjað hjá þeim að koma báðum liðum upp og það er stórt tækifæri fyrir þau að vera komin aftur í efstu deild. Þarna eru flottir þjálfarar og góð stjórn. Ég er mjög spenntur að spila fyrir félagið.“
Bónus-deild karla Ármann Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira