Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Atli Ísleifsson skrifar 30. júní 2025 07:08 Sunnanlands verður nokkuð milt, einhverjar skúrir á sveimi og hiti á bilinu tíu til fimmtán stig yfir daginn. Vísir/Anton Brink Allkröpp lægð er nú á leið til norðausturs milli Íslands og Færeyja og mun hún valda suðvestan hvassviðri í dag. Á Íslandi liggjum við þó í mun hægari norðanátt vestan lægðarmiðjunnar þar sem vindhraði verður yfirleitt á bilinu fimm til tíu metrar á sekúndu.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að á Norður- og Austurlandi verði heldur hráslagalegt í norðanáttinni, víða súld eða dálítil rigning. Þar má gera ráð fyrir hita á bilinu fimm til níu stig. „Sunnanlands verður hins vegar mun mildara, einhverjar skúrir á sveimi og hiti 10 til 15 stig yfir daginn, og við Faxaflóa ætti að létta til. Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt á morgun, skýjað með köflum og víða dálitlar skúrir. Hiti yfirleitt á bilinu 7 til 13 stig. Á miðvikudag snýst svo í suðlæga átt með vætu um landið sunnan- og vestanvert, en stöku skúrir og sæmilega milt á Norðaustur- og Austurlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Skýjað með köflum og víða dálitlar skúrir. Hiti 7 til 14 stig. Á miðvikudag: Sunnan 5-13 og væta með köflum, en stöku skúrir um landið norðaustanvert. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi. Á fimmtudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 og dálítil rigning, en skúrir norðaustanlands. Hiti breytist lítið. Á föstudag og laugardag: Fremur hæg breytileg átt og dálítil væta á víð og dreif. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á sunnudag: Vestlæg eða breytileg átt og víða líkur á skúrum.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira