Myndaveisla frá Hafnarfirði - Bylgjulestin 2025 Bylgjulestin 30. júní 2025 10:25 Ívar Guðmunds og Kristín Ruth stóðu vaktina þegar Bylgjulestin mætti til Hafnarfjarðar síðsta laugardag. Mynd/Viktor Freyr. Það var frábær stemning í Hafnarfirði síðustu helgi þegar bæjar- og tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar var sett. Bylgjulestin mætti á laugardaginn þar sem boðið var upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. „
Það var ótrúlega gaman að vera í Hjarta Hafnarfjarðar á laugardaginn,“ segir Kristín Ruth Jónsdóttir dagskrárgerðarkona á Bylgjunni en hún mun stýra Bylgjulestinni í sumar ásamt þeim Braga Guðmunds og Sigvalda Kaldalóns. Boðið var upp á andlitsmálningu sem mörg barnanna nýttu sér. Mynd/Viktor Freyr. Bylgjulestin var í beinni á laugardaginn milli kl. 12 og 16. „Það var svo mikil stemning í bænum, við fengum frábært veður og sólin var með okkur allan daginn. Fullt af krökkum mættu til okkar og fengu sundpoka frá Bylgjunni sem innihélt alls konar glaðning, skelltu sér í andlitsmálningu og fengu blöðrur frá Blaðraranum. Einnig fengum við frábæra gesti sem sögðu okkur frá bænum og sumir þeirra sungu fyrir okkur. Takk fyrir okkur Hafnarfjörður!“ Ýttu á hvítu örina til hægri til að skoða fleiri myndir. Papar mættu í heimsókn og tóku lagið.Myndir/Viktor Freyr. Viktor Freyr ljósmyndari mætti á staðinn og myndaði gleðina. Samstarfsaðilar Bylgjulestarinnar verða með í för. Sjóvá og Samgöngustofa munu fjalla um umferðaröryggi, Topptjöld og vagnar verða með iKamper vagn til sýnis, 7up Zero gefur gestum frískandi drykki, bílaumboðið Askja verður með bílasýningu og gjafapokarnir frá Bylgjunni verða að sjálfsögðu á sínum stað með 7up Zero pink, nammi frá Danól og varningi frá Bylgjunni. Prettyboitjokko mætti hress og kátur í heimsókn. Næstu áfangastaðir Bylgjulestarinnar í sumar: 5. júlí Akranes 13. júlí Selfoss 19. júlí Hljómskálagarðurinn 26. júlí Vaglaskógur
Bylgjan Bylgjulestin Hafnarfjörður Mest lesið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Bíó og sjónvarp Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Ástin blómstraði á sýningu Tolla Menning Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Lífið Rosalía og Björk slógu í gegn á Brit-hátíðinni Lífið Salka Sól látin fara Lífið Fleiri fréttir Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira