Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 8. júlí 2025 07:03 Helga Jóhanns og Magnús Darri giftu sig við einlæga og fallega athöfn á Snæfellsnesi. Blik studio „Við gerðum þetta á frekar óhefðbundinn hátt og vorum bæði mjög ánægð með þá ákvörðun,“ segir tískugyðjan nýgifta Helga Jóhannsdóttir. Helga, sem starfar sem þjónustufulltrúi hjá Snæfellsbæ, giftist ástinni sinni Magnúsi Darra Sigurðssyni skipstjóra í einstaklega fallegu sveitabrúðkaupi. Blaðamaður ræddi við hana um þennan draumadag.
Helga er fædd árið 1994 og Magnús árið 1991. Parið hefur verið saman í fimmtán ár og fluttust þau saman á Snæfellsnesið í byrjun árs 2017. Þar líður þeim ofboðslega vel og á endanum ákváðu þau því auðvitað að innsigla ástina þar. Nýgift og gullfalleg!Blik studio Hvenær og hvernig trúlofuðust þið? Við trúlofuðum okkur á Canopy hótelinu í Reykjavík árið 2020. Við vorum búin að plana smá date-night þegar dóttir okkar var bara nokkurra mánaða, fengum kvöldpössun fyrir hana og áttum pantað herbergi á þessu æðislega hóteli og borð á Austur-Indíafjelaginu þetta kvöld. Það var ótrúlega rómantískt og við áttum yndislegt kvöld saman. Svarið var mjög auðvelt JÁ, enda búin að vera saman í tíu ár þá og löngu búin að átta okkur á því að við vildum verja ævinni saman. Hjúin höfðu lengi vitað að þau vildu eyða ævinni saman.Aðsend Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn? Við erum búin að vera með hugann við þetta í um það bil tvö ár allavega. Við vorum mjög lengi að ákveða okkur hvernig brúðkaup við vildum halda og upphaflega planið var að gifta okkur í Fríkirkjunni í Reykjavík og halda svo veislu í nýja Sjálfstæðissalnum. Við fengum svo einhverja bakþanka með að halda svona stórt brúðkaup og ákváðum á endanum að bjóða nánustu fjölskyldu í litla athöfn í Búðakirkju og halda litla veislu á Hótel Búðum eftir á. Fljótlega eftir að við tókum þessa ákvörðun ákváðum við samt að bjóða vinum í brúðkaupspartý heim til okkar helgina eftir athöfnina. Hjónin ætluðu að halda stóra veislu í Reykjavík en ákváðu að hafa þetta frekar á persónulegum nótum á heimahögum þeirra.Blik studio Hvernig var brúðkaupsdagurinn? Brúðkaupsdagurinn var fullkominn! Við Magnús mættum á Hótel Búðir daginn fyrir brúðkaupið og áttum notalegar stundir saman í rólegheitunum, fórum út að borða og snemma að sofa. Brúðkaupsdagurinn byrjaði svo á rólegu nótunum, fórum saman í morgunmat og ég skellti mér út að hlaupa og svo um hádegisbil mætti allt nánasta fólkið okkar á hótelið. Magnús Darri og Helga ásamt fjölskyldum þeirra.Aðsend Hafrún vinkona kom svo til mín upp á herbergi og gerði mig fína og Aníta og Guðný bestu konurnar mínar voru með okkur. Bríet dóttir mín fékk líka fína hárgreiðslu og var hjá okkur og ömmum sínum til skiptis. Athöfnin var í Búðakirkju sem er einn fallegasti staður á landinu og var alveg dásamleg, Laufey Brá prestur gaf okkur saman og Guðný besta vinkona mín söng svo ótrúlega fallega við undirleik Matthías Stefáns fiðluleikara og Hilmar Örn Agnarsonar organista. Eftir athöfnina fórum við í myndatöku en Daníel hjá Blik Studios tók svo æðislegar myndir fyrir okkur. Salurinn sem við völdum heitir Bárðarstofa, hann er á annarri hæð á Hótel Búðum og var fullkominn fyrir 25 manna veislu. Borðhald hófst fljótlega eftir að við mættum úr myndatökunni og buðum við upp á þriggja rétta máltíð og frábær vín frá Baunir og Ber. View this post on Instagram A post shared by helga (@helgajohanns) Við sátum öll saman á einu langborði og þetta var algjörlega fullkomið kvöld með okkar nánasta fólki. Ræðurnar voru extra persónulegar og fallegar og allir náðu að spjalla saman á rólegu nótunum. Skiptuð þið gleðinni eitthvað upp? Já, við tókum ákvörðun að skipta þessu í tvær helgar. Við buðum fjölskyldunni í athöfn og litla veislu en helgina eftir buðum við vinum í brúðkaupspartý heim til okkar. Það var svo góð ákvörðun og það var svo gaman að fagna með vinum okkar á aðeins afslappaðari hátt en ef þetta hefði verið allt á einum degi. Magnús Darri og Helga búa á Hellissandi og ákváðu að halda alvöru partý í garðinum heima með sínum bestu vinum.Aðsend Við eigum heima á Hellissandi og margir gerðu helgarferð úr þessu og mættu á svæðið daginn áður. Við vorum orðin smá stressuð fyrir veðrinu enda búin að bjóða um hundrað manns heim til okkar og að treysta á hægt væri að nota pallinn líka. Það var þó óþarfa stress en það var sól og blíða alla helgina og fólk var úti nánast allan tímann. Við vorum með partýtjald í garðinum frá RVK partý sem var algjörlega frábært og svo buðum við upp á hamborgara frá Búllunni sem allir voru svo ánægðir með. Glæsilegar vinkonur, Guðný, Helga og Vala á stóra deginum.Aðsend Voruð þið sammála í skipulaginu? Já, við vorum mjög samstíga í þessu. Við gerðum þetta á frekar óhefðbundinn hátt og vorum bæði mjög ánægð með þá ákvörðun. Hjónin voru mjög samstíga og sammála um að fara óhefðbundna leið í brúðkaupsplaninu.Aðsend Hvaðan sóttuð þið innblástur? Ég skoðaði Pinterest óhemju mikið mánuðina fyrir veislurnar og endaði á að vilja hafa allar skreytingar mjög minimalískar og einfaldar. Ég var mjög ákveðin með hvernig blóm ég vildi hafa en hún Elísa í 4 Árstíðum gerði fallegasta brúðarvönd sem ég hef nokkru sinni séð fyrir mig, öll barmblómin og einnig blómakrans í hárið fyrir dóttur mína. Helga sótti mikinn innblástur á Pinterest og var í skýjunum með blómvöndinn frá 4 árstíðum.Blik studio Hvað stendur upp úr? Athöfnin stóð upp úr, hún var svo persónuleg og náin og tónlistin svo falleg, besta vinkona mín hún Guðný söng svo fallega og við erum líka svo ánægð með að hafa fengið Matta til að spila undir á fiðluna. Það stendur líka klárlega upp úr að hafa ákveðið að skipta þessu svona upp í tvær helgar, við náðum að fagna svo vel með fjölskyldunni sem oft verða smá út af fyrir sig í svona stórum brúðkaupum þegar margir vinir eru. Athöfnin var persónuleg og falleg í Búðakirkju.Aðsend Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði? Engin veislustjórn og engin formlegheit hvorki í litlu veislunni með fjölskyldunni né í partýinu með vinunum. Vinkonur mínar sáu þó um nokkur skemmtiatriði og svo fengum við Fannar Hipsumhaps til að koma og syngja nokkur lög, það var sturlað! Fannar í Hipsumhaps tók nokkur lög og gestir nutu sín í botn í garðinum.Aðsend Var eitthvað sem kom ykkur á óvart? Kom okkur ekki beint á óvart en það var svo gaman að sjá hvað maður á marga góða að sem vilja alltaf rétta fram hjálparhönd og eru tilbúnir að ganga í öll verk til að allt gangi upp. Þakklæti er okkur efst í huga. Falleg fjölskylda á fallegum degi!Aðsend Hvað voru margir gestir? 25 manns í litlu veislunni og um hundrað í partýinu heima. Helga ásamt góðum vinkonum.Aðsend Hvernig gekk að velja kjólinn? Varstu með fataskipti? Ég var með ákveðna hugmynd um hvernig kjól mig langaði í en fann hann hvergi. Ég ákvað því að hafa samband við Sigríði Ágústu fatahönnuð og lét hún draumakjólinn minn verða að veruleika. Ég er algjörlega í skýjunum með hann og mæli svo með að láta sauma á sig ef fólk er með einhverja ákveðna hugmynd í kollinum. Ég vissi frá byrjun að ég vildi ekki hefðbundinn brúðarkjól og fannst ég verða að láta stílinn minn skína í gegn. Ég valdi mér svarta KALDA skó við kjólinn og svarta tösku, til að dempa rómantíkina aðeins niður. Helga var í sérsaumuðum brúðarkjól eftir Sigríði Ágústu, ótrúlega stílhrein og mega töff á sama tíma.Aðsend Magnús fór svo í Suit Up og lét sérsauma á sig svört tvíhneppt jakkaföt sem hann er gríðarlega ánægður með. Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup? Að halda brúðkaup sem endurspeglar ykkur sem hjón. Hjá okkur var þetta útkoman, lítil athöfn, engin formlegheit og bara njóta með fjölskyldu og svo seinna með vinum. Það má alveg gera þetta á óhefðbundinn hátt. Við vorum líka rosalega ánægð með að hafa fengið foreldrafrí daginn fyrir brúðkaupið. Við fórum saman út að borða og snemma í háttinn og áttum ótrúlega rólega og góða byrjun á brúðkaupsdeginum. Krakkarnir mættu svo til okkar um hádegið og það var dásamlegt. View this post on Instagram A post shared by helga (@helgajohanns) Ætlið þið í brúðkaupsferð? Já við ætlum í brúðkaupsferð. Það er á planinu að fara til Japan. Við erum þó ekki búin að negla niður hvenær en vonandi vorið 2026.
Brúðkaup Ástin og lífið Tíska og hönnun Mest lesið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Lífið Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Lífið Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Lífið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Tímalausar og fallegar brúðargjafir Lífið Risastór menningarhátíð á Flateyri Menning Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Bíó og sjónvarp Drottningar landsins kjörnuðu sig með Ernu Bergmann Tíska og hönnun Ofboðslega falleg berskjöldun Menning Fleiri fréttir Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Sjá meira