Bylgjulestin mætir á Írska daga á Akranesi Bylgjulestin 4. júlí 2025 08:59 Bragi Guðmunds og Kristín Ruth Jónsdóttir stýra Bylgjulestinni á laugardag sem verður staðsett á Akratorgi á Akranesi. Þar verður m.a. boðið upp á fjölskyldudagskrá, Sirkus Íslands, hoppukastala, Gunna og Felix, BMX Bros og rauðhærðasti Íslendingurinn verður valinn. Næsti viðkomustaður Bylgjulestarinnar er Akranes en fjölskylduhátíðin Írskir dagar fer þar fram dagana 3.-6. júlí. Það má því búast við miklu fjöri alla helgina en Bylgjulestin verður í beinni á laugardaginn milli kl. 12 og 16.
Það verða þau Kristín Ruth Jónsdóttir og Bragi Guðmunds sem stýra Bylgjulestinni á laugardag sem verður staðsett á Akratorgi. Þar verður m.a. boðið upp á fjölskyldudagskrá, Sirkus Íslands, hoppukastala, Gunna og Felix, BMX Bros og rauðhærðasti Íslendingurinn verður valinn. „Við erum mjög spennt yfir því að mæta á Akranes enda eru Írskir dagar haldnir þar um helgina sem er ein af stærstu hátíðum ársins,“ segir Kristín. „Það verður gaman að keyra inn í bæinn og sjá hann skreyttan alls konar litum eftir hverfum. Askja verður með ökuleik þar sem keppt er í tímatöku og það verður fullt af skemmtilegum gjöfum og glaðning í boði hjá okkur, m.a. andlitsmálning fyrir krakkana og gefinn verður varningur frá Bylgjunni.“ Fjölskylduhátíðin Írskir dagar var fyrst haldin árið 2000 og er í dag ein mest sótta bæjarhátíð landsins. Hún nær hápunkti sínum á laugardag en þá er m.a. boðið upp á fjölskyldudagskrá á Aðaltorgi, brekkusöng og Lopapeysuna sem heimamenn kalla stærsta sveitaball í heimi, hvorki meira né minna. Boðið verður upp á glæsilega dagskrá þar sem koma fram Todmobile, Quarashi, Auddi Blö og Steindi, Sigga Beinteins, Stebbi Hilmars, Friðrik Dór og Stuðlabandið ásamt gestum. Samstarfsaðilar Bylgjulestarinnar verða með í för. Sjóvá og Samgöngustofa munu fjalla um umferðaröryggi, Topptjöld og vagnar verða með iKamper vagn til sýnis, 7up Zero gefur gestum frískandi drykki, bílaumboðið Askja verður með bílasýningu og gjafapokarnir frá Bylgjunni verða að sjálfsögðu á sínum stað með 7up Zero pink, nammi frá Danól og varningi frá Bylgjunni. Næstu áfangastaðir Bylgjulestarinnar í sumar: 13. júlí Selfoss 19. júlí Hljómskálagarðurinn 26. júlí Vaglaskógur
Bylgjulestin Bylgjan Akranes Mest lesið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Bíó og sjónvarp Ástin blómstraði á sýningu Tolla Menning Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Lífið Rosalía og Björk slógu í gegn á Brit-hátíðinni Lífið Salka Sól látin fara Lífið Fleiri fréttir Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira