Strákarnir tryggðu sér úrslitaleik um sæti í A-deild EM með stórsigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júlí 2025 11:59 Kristján Fannar Ingólfsson var frábær í dag. Hann skoraði tuttugu stig í fyrri hálfleiknum eða jafnmikið og samanlagt í þremur leikjum á undan þessum. FIBA.Basketball Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta sýndi sínar bestu hliðar þegar liðið tryggði sér sæti í hreinum úrslitaleik um áframhaldandi veru í A-deild Evrópumótsins.
Íslensku strákarnir urðu að vinna Úkraínu til að fá að leik um þrettánda sætið. Liðin sem enda í sætum fjórtán til sextán falla niður í B-deild. Íslenska liðið fór á kostum í dag og vann leikinn með 21 stigs mun, 88-67. Keppnin fer fram í Heraklion á Krít. Kristján Fannar Ingólfsson átti sinn besta leik á mótinu en hann skoraði 20 stig í fyrri hálfleiknum og 27 stig alls. Hann var einnig með fimm fráköst og fimm stolna bolta. Miðherjinn Friðrik Leó Curtis var að venju öflugur með 22 stig og 8 fráköst og leikstjórnandinn Hilmir Arnarsson skoraði 15 stig eins og Lars Erik Bragason. Kristján Fannar og Hilmir hittu báðir úr þremur af fjórum þriggja stiga skotum sínum í skotsýningu liðins í fyrri hálfleiknum þegar íslenska liðið var með fimmtíu prósent þriggja stiga nýtingu. Strákarnir gáfu tóninn frá fyrstu mínútu en þeir unnu fyrsta leikhlutann með 23 stiga mun, 29-6. Þeir voru síðan komnir 31 stigi yfir í hálfleik, 58-27. Seinni hálfleikurinn var nánast formsatriði en Úkraínumenn náðu aðeins að laga stöðuna. Liðið mætir sigurvegaranum úr leik Þýskalands og Finnlands en Úkraínumenn mæta tapliðinu í baráttunni um að sleppa við síðasta sætið.
Körfubolti Landslið karla í körfubolta Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Fótbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjá meira