Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. ágúst 2025 18:01 Alexander Isak fagnar marki gegn Liverpool á síðustu leiktíð. Stu Forster/Getty Images Eftir að Newcastle United neitaði tilboði Englandsmeistara Liverpool í sænska framherjann Alexander Isak eru Englandsmeistararnir tilbúnir að hætta eltingaleiknum.
Fyrr í dag var greint frá því að Newcastle hefði neitað boði Liverpool í leikmanninn sem er kominn í skammarkrókinn hjá sínu liði. Tilboð Liverpool hljóðaði upp á 110 milljónir punda eða 18 milljarða króna. Newcastle vill hins vegar 150 milljónir punda – tæplega 25 milljarða íslenskra króna. Breska ríkisútvarpið greinir nú frá því að Liverpool trúi ekki að hægt sé að ná samkomulagi við Newcastle um þennan 25 ára gamla framherja. Því sé liðið ekki tilbúið að eltast við hann lengur þar sem það væri tímasóun. Isak gekk í raðir Newcastle frá Real Sociedad fyrir 60 milljónir punda árið 2022. Í 109 leikjum fyrir Newcastle hefur Isak skorað 62 mörk – þar af 23 deildarmörk á síðustu leiktíð – og gefið 11 stoðsendingar. Englandsmeistarar Liverpool opna ensku úrvalsdeildina með leik gegn Bournemouth þann 15. ágúst næstkomandi. Degi síðar mætast Newcastle United og Aston Villa á Villa Park. Allir 380 leikirnir í ensku úrvalsdeildinni verða sýndir á rásum Sýn Sport. Hér má tryggja sér áskrift.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sport Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Enski boltinn „Þegar það rignir þá hellirignir“ Fótbolti „Komin mjög góð holning á liðið“ Fótbolti Albert fljótur að skora í bikarsigri Fiorentina Fótbolti Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Körfubolti Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 0-3 | Slitu sig frá fallsvæðinu og juku eymd Víkings Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Sjá meira