Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Kjartan Kjartansson skrifar 13. ágúst 2025 12:46 Guðrún Ása Björnsdóttir hætti sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar í síðasta mánuði. Vísir Guðrún Ása Björnsdóttir er hætt sem framkvæmdastjóri heilbrigðisfyrirtækisins Klíníkurinnar eftir aðeins um eitt og hálft ár í starfi. Við starfinu tekur Kristján Jón Jónatansson.
Engin tilkynning hefur verið gefin út um framkvæmdastjóraskiptin en þegar skrifað var undir samning milli Klíníkurinnar og Sjúkratrygginga um framkvæmd ýmissa aðgerða í gær var Kristján Jón þar fyrir hönd fyrirtækisins. Hann er nú titlaður framkvæmdastjóri á vefsíðu fyrirtækisins. Guðrún Ása staðfestir í samtali við Vísi að hún hafi hætt störfum í júlí. Kristján Jón, sem nýlega hafi verið ráðinn fjármálastjóri Klíníkurinnar, hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri tímabundið í hennar stað. Hún vildi ekki tjá sig um brotthvarf sitt að öðru leyti. Aðalfundur Klíníkurinnar verður haldinn síðar í þessum mánuði. Guðrún Ása tók við starfi framkvæmdastjóra í fyrra en hún hafði fram að því starfað sem faglegur aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar, þáverandi heilbrigðisráðherra. Hún er læknir og var meðal annars Formaður félags almennra lækna og sat í stjórn Læknafélags Íslands. Eftirmaður hennar, Kristján Jón, starfaði sem fjármálastjóri Banana ehf. áður en hann var ráðinn til Klíníkurinnar. Hann var áður rekstrarstjóri Samtaka atvinnulífsins og aðalbókari Byko. Eyjólfur Árni Rafnsson, sem tók við formennsku í stjórn Klíníkurinnar í fyrra, vildi ekki tjá sig um framkvæmdastjóraskiptin þegar eftir því var leitað. Hann var formaður Samtaka atvinnulífsins þar sem Kristján Jón starfaði áður.
Vistaskipti Heilbrigðismál Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira