Neytendur

Grunur um listeríu í vin­sælum ostum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallar þessa osta. 
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallar þessa osta. 

Aðföng, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum ostana Duc de Loire og Royal Faucon Camembert. Grunur er um að ostarnir séu mengaðir af bakteríunni Listeria monocytogenes.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Reykjavíkurborgar. Þar segir að Listeria monocytogenes geti valdið alvarlegum matarbornum sjúkdómi, sérstaklega hjá öldruðum, barnshafandi konum, nýfæddum börnum og einstaklingum með skert ónæmiskerfi. Nánar um Listeria monocytogenes má lesa á vefsíðu Matvælastofnunar.

Ostarnir sem um ræðir hafa verið í sölu í verslunum Hagkaupa um land allt. 

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við

a)

Vöruheiti: Duc de Loire

Geymsluþol:Best fyrir 12-08-2025

Lotunúmer:C5170112

Nettómagn: 300g.

Upprunaland: Frakkland

b)

Vöruheiti:Royal Faucon Camembert

Geymsluþol: Best fyrir 17-08-2025

Lotunúmer:C5171077

Nettómagn: 250 g.

Upprunaland: Frakkland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru

Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×