Innherji

Fjár­festingafélag Sor­os komið með margra milljarða stöðu í JBT Marel

Hörður Ægisson skrifar
George Soros er einn frægasti fjárfestir heimsins en fjárfestingafélagið hans Soros Fund Management, sem er samtals með um 25 milljarða dala eignir í stýringu, átti fyrir kaupin í JBT Marel engin bréf í félaginu.
George Soros er einn frægasti fjárfestir heimsins en fjárfestingafélagið hans Soros Fund Management, sem er samtals með um 25 milljarða dala eignir í stýringu, átti fyrir kaupin í JBT Marel engin bréf í félaginu.

Fjárfestingafélag í eigu hins heimsþekkta fjárfestis George Soros, sem hagnaðist ævintýralega þegar hann felldi breska pundið árið 1992, hefur bæst við hluthafahóp JBT Marel eftir að hafa keypt stóran hlut í félaginu á öðrum fjórðungi. Á sama tíma var umsvifamesti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu jafnframt að byggja upp enn stæri stöðu í félaginu en hlutabréfaverð JBT Marel hefur hækkað skarpt að undanförnu.


Tengdar fréttir

Upp­gjör JBTM yfir væntingum og stjórn­endur birta af­komu­spá vegna minni óvissu

Afkoma JBT Marels á öðrum fjórðungi var yfir væntingum greinenda og aðlagaður rekstrarhagnaður hækkaði talsvert frá fyrstu þremur mánuðum ársins. Vegna minnkandi óvissu hafa stjórnendur félagsins treyst sér til að birta á nýjan leik afkomuspá fyrir árið 2025, en hækkandi tollar hafa þar lítilleg áhrif á afkomuna.

Spáir hæg­fara hækkun á fram­legðar­hlut­falli JBTM og telur félagið undir­verðlagt

Þrátt fyrir „hófsama“ spá hlutabréfagreinanda um að framlegðarhlutfall sameinaðs félags JBT og Marel muni hækka smám saman á næstu árum í 38 prósent – það var 36,7 prósent í fyrra – þá er félagið samt nokkuð undirverðlagt um þessar mundir, samkvæmt nýrri greiningu. Metinnflæði var í nýjum pöntunum á síðasta fjórðungi en líklega vilja stjórnendur gera enn betur og ná pantanabókinni upp fyrir 38 prósent af tekjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×