Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. ágúst 2025 20:04 Kristall er kominn aftur af stað eftir meiðslin. Sönderjyske Fodbold Kristall Máni Ingason breytti leiknum með sinni innkomu og skoraði mark fyrir Sönderjyske, sem þurfti svo að sætta sig við svekkjandi 3-2 tap gegn Fredericia eftir að hafa fengið á sig mark á lokamínútunum í fimmtu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar.
Kristall Máni hefur glímt við meiðsli síðustu mánuði og missti af endaspretti síðasta tímabils og fyrstu tveimur leikjum þessa tímabils. Hann sneri aftur í hópinn í þarsíðasta leik, spilaði svo tuttugu mínútur í síðasta leik og rúman hálftíma í dag. Kristall kom inn á 58. mínútu, fljótlega eftir að Sönderjyske lenti 2-0 undir, og var ekki lengi að láta til sín taka. Liðið hafði spilað manni færri frá því í fyrri hálfleik og virtist vera algjörlega heillum horfið en Kristall skoraði aðeins um fimm mínútum eftir að hann kom inn á, lagði boltann snyrtilega í netið eftir undirbúning og sendingu út í teiginn frá Andreas Oggesen. Eftir að hafa minnkað muninn sótti Sönderjyske á bragðið og setti jöfnunarmark um stundarfjórðung síðar, á 79. mínútu. Maxime Soulas var þar á ferð, aftur eftir undirbúning Andreas Oggesen. Sönderjyske hélt hins vegar ekki út með jafna stöðu og fékk á sig mark á lokamínútunum sem tryggði Fredericia 3-2 sigur. Sönderjyske er í tíunda sæti dönsku úrvalsdeildarinnar eftir fimm umferðir og gæti dottið niður í fallsæti ef Silkeborg vinnur á morgun. Fredericia hefur komið mörgum á óvart í upphafi tímabils og fór upp í fjórða sæti með sigrinum. Helgi Fróði spilaði hálfleik Á sama tíma í Hollandi var Helgi Fróði Ingason í byrjunarliði Helmond Sport og spilaði fyrri hálfleikinn í 1-1 jafntefli á útivelli gegn Waalwijk í annarri umferðinni í næstefstu deild hollenska boltans.
Danski boltinn Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Fleiri fréttir Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Sjá meira