Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 27. ágúst 2025 06:31 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Carsten Breuer, yfirherforingi þýska hersins. Stjórnarráð Íslands Samband Íslands og Bandaríkjanna á sviði varnarmála hefur aldrei verið þéttara að sögn yfirmanns varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Yfirmaður þýska hersins segir öryggisógnina sem steðji að Evrópu nú vera þá mestu á sínum fjörutíu ára ferli í hernum.
Samtal hefur farið fram við bæði Þjóðverja og Frakka um aukið samstarf á vettvangi öryggis- og varnarmála og verið er að leggja lokahönd á samning við Finna á næstu vikum að sögn utanríkisráðherra. Þá hafa stjórnvöld einnig verið í samtali við Kanada. Ástandið í Evrópu ógnvænlegt Carsten Breuer, yfirherforingi þýska heraflans, kom til landsins í vikunni en tilgangur heimsóknarinnar að styrkja samstarf ríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála, einkum á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi. Öryggisumhverfið í Evrópu sé gjörbreytt í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og því sjaldan mikilvægara að bandamenn styrki böndin. Sjá einnig: Þýskur herforingi í heimsókn á Íslandi „Ástandið er hættulegt og ógn stafar af Rússlandi í Evrópu. Ég hef ekki séð neitt þessu líkt á mínum fjörutíu árum sem hermaður. Ógnin er yfirvofandi, hún er fyrir hendi og við verðum að takast á við hana. Við höfum samþykkt ógnarmat í samstarfi við NATO og það er vel en tvíhliða samstarf er fyrir hendi þar sem við höfum ætíð til skoðunar hvernig við skynjum þessa ógn og hvernig við vinnum gegn henni,“ segir Breuer. Yfirherforinginn Carsten Breuer kveðst gjarnan vilja heimsækja Ísland aftur fljótlega. Landið sé fallegt og móttökurnar hafi verið góðar.Vísir/Bjarni Íslandsheimsóknin sé liður í því. „Við höfum reglulega staðsett flugvélar okkar hér. Sjóher okkar kemur reglulega hingað til eftirlits. Þetta mál er að sjálfsögðu til skoðunar í ljósi nýju ógnanna og í ljósi ógnarmats okkar. Að sjálfsögðu verður stefnan aðlöguð og nánari tengsl milli Íslands og Þýskalands verða auðvitað efld,“ segir herforinginn. Sambandið hvað sterkast nú frá því herinn fór Viðhorf núverandi Bandaríkjastjórnar til Atlantshafsbandalagsins og hvað lítur að hlutverki Bandaríkjanna hvað varðar varnir Evrópu hefur tekið nokkrum breytingum frá því Trump-stjórnin tók aftur við völdum. Auk stríðsins í Úkraínu hefur breyttur tónn Bandaríkjanna einnig ýtt undir umræðu á vettvangi Evrópuríkja og annarra bandalagsríkja um öryggis- og varnarmál og hvernig ríkin geta unnið þéttar saman. Jónas G. Allansson, sem leiðir varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, hefur ekki áhyggjur af stöðu sambands Íslands við Bandaríkin hvað þetta varðar. Jónas G. Allansson leiðir varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.Vísir/Bjarni „Aðalatriðið í þessu er að við erum að treysta samstarfið innan Atlantshafsbandalagsins við lykilríki þar. Það höfum við verið að styrkja á síðustu árum mjög mikið með Norðurlöndunum. Samstarfið við Bandaríkin hefur aldrei verið eins þétt eins og það er núna, og við erum að horfa sérstaklega á okkar grannríki og stóru ríkin í Evrópu,“ segir Jónas. Hann ítrekar að áhersla sé lögð á að efla enn frekar tvíhliða samstarf við einstök bandalagsríki NATO, en auk Þýskalands hefur nýlega verið unnið að því að efla samstarf við Frakkland. Það fór vel á með Jónasi og Breuer.Stjórnarráð Íslands „Samstarfið við Bandaríkin hefur sennilega ekki verið eins sterkt frá því að herinn fór héðan og við erum með sameiginlega hagsmuni, við erum í mjög þéttu samstarfi, sérstaklega hvað varðar eftirlit á Norður-Atlantshafi. Það skiptir miklu máli fyrir öryggi Norður-Ameríku að tryggja eftirlit með kafbátum og umferð hér á Atlantshafi, það skiptir máli sérstaklega fyrir austurströnd Bandaríkjanna og það er ekkert sem að bendir til þess að það komi til með að breytast,“ bætir Jónas við. Frekari viðræður í farvatninu við fleiri ríki Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tekur undir að heimsóknin endurspegli áherslur stjórnvalda um að efla enn frekar sambandið við lykil ríki innan bandalagsins. „Heimsókn hans undirstrikar þann þunga og þann mikla fókus sem ekki bara Ísland, heldur aðildarríki NATO, eru að setja á Norðurslóðir og Norður-Atlantshafið. Við þurfum að hafa varann á,” segir Þorgerður. Öryggisógnirnar séu með þeim hætti að „þessi líkt þenkjandi ríki“ innan NATO þurfi að standa saman sem aldrei fyrr. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir/Lýður „Þetta er það sem við höfum verið að vinna að þetta árið,“ segir Þorgerður en hægri hönd yfirmanns varnarmála í Þýskalandi kom hingað í heimsókn í janúar. Frá því hafi innan ráðuneytisins verið unnið að bréfi sem eigi að sýna fram á vilja Íslands til samstarfs við Þjóðverja. Þá segir hún verið að leggja lokahönd á samning við Finna á næstu vikum og stjórnvöld hafi verið í samtali við bæði Kanada og Þýskalands. „Allt til að styrkja okkar öryggi, efla okkar öryggi en líka til þess að verða þessi mikilvægi bandamaður í Atlantshafinu,“ segir Þorgerður.
Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Norðurslóðir Þýskaland NATO Innrás Rússa í Úkraínu Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veður „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Innlent Fleiri fréttir Langreyðarnar komnar á land Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig 86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Pólitískur ólgusjór í Bretlandi, hvalveiðar og banvæn hitabylgja „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Sjá meira