Sjallar og lyklaborðið Sigfús Ómar Höskuldsson skrifar 27. ágúst 2025 17:01 Oft hugsað um hvað það sem fær stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins og annarra, svokallaðs hægra fólks til að halda sér til hlés og halda sig á mottunni. Get ekki séð annað en samkvæmt fréttum síðustu vikna að nokkrir hlutir séu þessum fólki, bæði kjörnum fulltrúum og þeirra stuðningsmanna og kvenna gerðir til að halda sig víðs fjarri lyklaborðunum. Sem er auðvitað fagnaðarefni út af fyrir sig, nóg samt en umhugsunarvert þegar nokkur atrið eru sett niður á blað. I. Sjálftaka sjálfstætt starfandi lækna og þeirra fyrirtækja úr sameiginlegum sjóðum okkar allra. (Sjá umfjöllun Kastljós hér : http://bit.ly/4fWQfOO) . Nú er það ekki ætlunin hér að saka alla þá sem hafa læknamenntun að baki, að þau öll séu niðjar Mammons, að það hafi kallað þau að borðinu einu saman, að græða á daginn en grilla í bústaðnum á kvöldin, síður en svo. En greinarhöfundur hefur nú nokkrar læknisheimsóknir að baki, sumar léttvægar, aðrar þyngri, sumar mjög stuttar en aðrar lengri. Engu að síður hefur einn ekki hugmynd hvað lá á bak við kostnaðinn, viðtal I eða viðtal II, skoðun I eða skoðun II. Bak við þessi heiti eru gjaldaeiningar sem bara bókarar einkareknu læknatofnanna vita og svo Sjúkratryggingar Íslands. En aumur notandinn hafði aldrei möguleika að vita hvenær hann varð svona dýr og það sem hann mátti greiða úr eigin vasa. Um þetta hafa kjörnu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins engar hugmyndir um, vilja ekki vita af, vilja ekki ræða en vilja bara ræða svo vitnað sé í orðræðu þeirra margra „Ríkissjóður er ekki endalaus auðlind, hann verður að ganga vel um“. En sumir mega ganga betur um en aðrir og það án umræðu kjörinna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og þeirra stuðningsfólks. Það er við þetta að bæta þegar kemur að umræðunni um Sjúkratryggingar Íslands, þá er það eitt mest afrek þ.v Heilbrigðisráðherra Guðlaugs Þórs að hafa búið til eina ríkisstofnuna til á árununm fyrir hrun. Þar varð til gríðalegur kostnaður við að slíta í sundur eina stofun til að útbúa tvær. Stofnanir sem vinna álíka verk, að millifæra greiðslur úr Ríkissjóði til notenda. En þá var Ríkissjóður ótakmörkuð auðlind í boði Sjálfstæðisflokks. Munum það. II. Hvernig aðilum hér á landi sem selja okkur orku á margar bifreiðar hér á landi tekst ómögulega að lækka verð þegar krónan okkar, sú sama króna og þessir kjörnu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og þeirra slekti vilja standa þéttan vörð um, styrkist. Ætla megi að um lækkun á bilinu 12-14 % sé enn ekki komin fram m.v styrkingu krónu á dollar sem er jú viðskiptaeining olíuviðskipta á þessu almanaksári. En jú á meðan er það mikil, stór og heit kartafla fyrir Sjálfstæðismenn og konur að ræða. Neytendamál hafa svo sem ekki verið þeirra uppáhaldsumræða þeirra Sjálfstæðismann og kvenna. Halda sig vel frá lyklaborðinu þegar að því kemur. Eins og Bjartmar Guðlaugsson orti hér um árið „Á ekki eitt einasta orð“ ! III. Nú má sjá allar tölur benda á aukna unglingadrykkju, ástand sem er búið að vara lengi, allt of lengi. Gott ef einn Sjálfstæðismanna, fyrrum skólastjóri og alger tappi þekki ekki málið betur en annar. Síðust ár hafa svo þingmenn og þá sér í lagi kona ein, nú nemi á minn og okkar hinna sem greiða skatta launakostnað, haft mikið fyrir því að auka flæði á áfengissölu, fyrir unga sem aldna. Þar er helsti útgangspunkturinn að hér verði allt að vera eins og í hinni “vondu” Evrópu. Hér megi og eigi ekki mismuna. Hér eigi mjöðurinn að flæða sem mest , þá sem mest í umboði einkaðila sem jú reka sinn rekstur á erlendri grundu og því hagnaður sem kann að verða til ekki endilega færður til bókar hér og af þeim greiddu skattur sem kann svo aftur að vera nýttur til forvarna. Nei hér er svo mestu hortugheitin. Það vita þeir sem þekkja til að alþjóðastofnana sem íslendingar reiða sig mikið á í baráttu við önnur ríki eru nauðsynlegar. Hér var einn ráðherra Sjálfstæðisflokks sem kaus að yfirgefa ráðuneytið sitt sökum þess að stofnun sem Ísland leitar til og reiðir sig á kaus að setja ofan í við við fyrrum ráðherrann. En þá tók kór helstu stofnanna Sjálfstæðisflokksins við að gera lítið út téðri stofnun, að það væri ekki hlutverka stofnanna erlendis að segja okkur til. Hér sé fullveldi og eigi að vera. En þegar kemur að miðnum góða, áfenginu, þá er annað upp á teningnum, þá skuli fá upp úr kveðið frá miðlægri, erlendri stofnun hvort hér megi ekki veri dæla af miðnum góða við hvert horn, við hverja skólalóð, fyrir frama hvern skjá. Þá skiptir okkar ágæta fullveldi litlu, þá skuli hlýta þvi sem hin „vonda“ Evrópa segir. En um þetta kjósa kjörnir fulltrúar ekki að ræða, vilja ekki vita af þessu máli og sýna tómlæti. Á meðan allavega haldast sömu kjörnu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og þeirra þýði frá lyklaborðunum, sem er bara ágætt út af fyrir sig. Höfundur er rekstrarfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar