Svikahrappur bankaði upp á og hafði peninga af eldri borgurum Árni Sæberg skrifar 3. september 2025 15:00 Maðurinn komst inn á heimili fólksins á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú fjársvikamál þar sem íslenskur karlmaður fór á heimili eldri borgara í umdæminu, sagðist vera starfsmaður Microsoft og vera kominn þeim til aðstoðar. Hann hafði með því umtalsverða fjármuni af fólkinu.
Í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir að manninum hafi verið hleypt inn á heimili fólksins og veittur aðgangur að tölvu þar. Þar hafi hann millifært umtalsverða fjármuni af bankareikningum heimilisfólksins. Þetta sé alvarleg þróun frá hefðbundnum Microsoft-símasvindlum þar sem fjársvikararnir séu nú farnir að fá að því er virðist innlenda aðila til að fara inn á heimili fólks í stað þess að hringja. Lögreglan hvetji alla til að vera á varðbergi gagnvart slíkum fjársvikum og vilji minna á að starfsmenn Microsoft: Koma aldrei óumbeðnir heim til einstaklinga Óska aldrei eftir aðgangi að tölvum, símtækjum, iPad eða bankareikningum Biðja aldrei um persónulegar upplýsingar í gegnum síma Þá segir að hafi fólk orðið fyrir fjársvikum skuli hafa sambandi við viðskiptabanka sinn tafarlaust, hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 og safna saman öllum upplýsingum um atvikið og senda á cybercrime@lrh.is. Lögreglan sé með málið til rannsóknar eins og áður sagði og hvetji alla sem kunna að hafa orðið fyrir álíka fjársvikum til þess að hafa samband.
Lögreglumál Eldri borgarar Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira