Kaupir fjórða húsið við sömu götu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. september 2025 19:08 Harry Styles á núna fjögur hús við sömu götuna í Lundúnum. Getty/Elisabetta A. Villa Heimsfrægi söngvarinn Harry Styles hefur keypt fjórða húsið sitt við sömu götuna í Lundúnum. Hann hyggst sameina lóðirnar og byggja þar gríðarstórt glæsisetur.
Gatan er í hverfinu Hampstead en þar má finna dýrustu hús Lundúnaborgar. Styles keypti fyrsta húsið sitt við götuna í apríl árið 2019 fyrir 8,8 milljónir punda eða tæpan einn og hálfan milljarð íslenskra króna. Þá keypti hann annað húsið fyrir um 4,1 milljón punda, tæpar sjö hundruð milljónir króna. Þriðja húsið er neðar í götunni og talið hafa verið fjárfesting en ekki heimili hans. Núna er Styles í framkvæmdahug en hann hyggst byggja gríðarstórt glæsisetur á lóðunum þar sem húsin tvö standa. Hann sótti um byggingarleyfi fyrir setrið sem hann fékk gegn því að byggja einnig skjól fyrir dýr á svæðinu, fyrir til dæmis broddgelti, leðurblökur og skordýr. Í setrinu verður stórt svefnherbergi með fjórum fataherbergjum, sérstakur sýningarsalur og verönd innandyra. Talið er að fjórða og nýjasta húsið eigi að vera eins konar gestahús, þar sem vinir og fjölskylda stjörnunnar geta dvalið. Á milli gestahússins og glæsisetursins er stór garður og vegur. Harry Styles var meðlimur í geysivinsælu strákahljómsveitinni One Direction sem lagði upp laupana árið 2016. Eftir að hljómsveitarferlinum lauk hefur Styles gefið út þrjár plötur, Harry's House, Fine Line og Harry Styles. Hann hefur einnig látið ljós sitt skína á hvíta tjaldinu í hlutverkum í kvikmyndunum Dunkrik og Don't Worry Darling.
Tónlist Bretland Hollywood Tengdar fréttir Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Poppstjarnan Harry Styles hefur gefið út titrara og sleipiefni gegnum lífstílsmerki sitt Pleasing. Aðdáendur Styles virðast ánægðir með gjörninginn þó þeir hefðu frekar viljað að hann gæfi út nýja tónlist. 26. júlí 2025 14:02 Harry Styles lék óþolandi Íslending í SNL Tónlistarmaðurinn og hjartaknúsarinn Harry Styles var í aðalhlutverki í Saturday Night Live grínþættinum í Bandaríkjanum um helgina. Þar brá hann sér meðal annars í hlutverk Íslendings sem sótti fæðingarnámskeið með kærustunni. 18. nóvember 2019 20:02 Mest lesið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira
Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Poppstjarnan Harry Styles hefur gefið út titrara og sleipiefni gegnum lífstílsmerki sitt Pleasing. Aðdáendur Styles virðast ánægðir með gjörninginn þó þeir hefðu frekar viljað að hann gæfi út nýja tónlist. 26. júlí 2025 14:02
Harry Styles lék óþolandi Íslending í SNL Tónlistarmaðurinn og hjartaknúsarinn Harry Styles var í aðalhlutverki í Saturday Night Live grínþættinum í Bandaríkjanum um helgina. Þar brá hann sér meðal annars í hlutverk Íslendings sem sótti fæðingarnámskeið með kærustunni. 18. nóvember 2019 20:02