Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 15. september 2025 23:48 Enn berast nýjar upplýsingar um morðið á Charlie Kirk. Hinn grunaði er Tyler Robinson, 22 ára nemi í rafvirkjun. AP Hinn 22 ára gamli Tyler Robinson, sem grunaður er um að hafa skotið fjarhægrimanninn Charlie Kirk til bana á háskólasamkomu í Utah í síðustu viku, sendi smáskilaboð í aðdraganda morðsins þar sem hann sagðist ætla að drepa Kirk.
Kash Patel stjórnandi hjá FBI greindi frá þessu í viðtali á Fox News í dag. Þá greindi hann frá því að Robinson væri grunaður um að hafa skrifað á bréfmiða að hann hefði „tækifæri til að drepa Charlie Kirk“ og að það ætlaði hann að gera. Miðinn hafi aftur á móti síðar verið eyðilagður en sterkar vísbendingar væru um að hann hefði verið til. Þá hefðu yfirheyrslur leitt í ljós hvað hefði staðið á miðanum. Patel gaf ekki nánari upplýsingar um hver hefði fengið smáskilaboðin eða hvort einhver hefði sér bréfmiðann áður en árásin var framin. Þá hafa rannsakendur ekki greint frá kveikjunni að árásinni. Lögregla grunar Robinson um að hafa verið einn að verki en rannsakar enn hvort fleiri hafi haft aðkomu að árásinni. Washington Post greinir frá því að Robinson eigi að hafa sent skilaboð á hópspjall á samfélagsmiðlinum Discord eftir atvikið þar sem hann virðist viðurkenna að hafa skotið Kirk til bana. „Þetta var ég í UVU [háskólanum] í gær. Fyrirgefið allt saman,“ segir í skilaboðum sem send voru af Discord-reikningi Robinson skömmu áður en hann var handtekinn á fimmtudagskvöld, rúmum sólarhring eftir skotárásina. Lance Twiggs, kærasta Robinson, hefur greint frá því að Robinson hafi vafið riffli í handklæði og falið hann í runna nálægt háskólanum eftir að Kirk var skotinn til bana. Samkvæmt umfjöllun Reuters er búist við að lögð verði fram ákæra á hendur Robinson ekki síðar en á morgun þegar hann verður leiddur fyrir dómara. Hann hefur hingað til setið í gæsluvarðhaldi í fangelsi í Utah.
Morðið á Charlie Kirk Bandaríkin Erlend sakamál Skotvopn Tengdar fréttir Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Trans sambýliskona Tylers Robinsons, sem grunaður er um að bana íhaldsama áhrifavaldinum Charlie Kirk, er gríðarlega samvinnuþýð að sögn lögreglu. Hún hafi verið „skelfingu lostin“ þegar hún heyrði fréttirnar. Áður en Robinson var handtekinn grínaðist hann með að maðurinn sem lögregla lýsti eftir væri „tvífari“ sinn í spjalli á Discord. 14. september 2025 11:20 Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Erika Kirk, ekkja hægri-áhrifavaldsins Charlie Kirk sem var skotinn til bana á miðvikudag, tjáði sig opinberlega í fyrsta sinn frá morðinu í gærkvöldi. Hún hét því að halda boðskap hans á lífi og ávarpaði morðingja hans beint. 13. september 2025 08:38 Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Pete Hegseth varnarmálaráðherra, og verðandi stríðsmálaráðherra, Bandaríkjanna hefur fyrirskipað ráðuneytinu að kemba samfélagsmiðla starfsfólks í leit að „óviðeigandi ummælum“ varðandi morðið á áhrifavaldinum öfgafulla Charlie Kirk. 12. september 2025 23:20 Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira
Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Trans sambýliskona Tylers Robinsons, sem grunaður er um að bana íhaldsama áhrifavaldinum Charlie Kirk, er gríðarlega samvinnuþýð að sögn lögreglu. Hún hafi verið „skelfingu lostin“ þegar hún heyrði fréttirnar. Áður en Robinson var handtekinn grínaðist hann með að maðurinn sem lögregla lýsti eftir væri „tvífari“ sinn í spjalli á Discord. 14. september 2025 11:20
Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Erika Kirk, ekkja hægri-áhrifavaldsins Charlie Kirk sem var skotinn til bana á miðvikudag, tjáði sig opinberlega í fyrsta sinn frá morðinu í gærkvöldi. Hún hét því að halda boðskap hans á lífi og ávarpaði morðingja hans beint. 13. september 2025 08:38
Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Pete Hegseth varnarmálaráðherra, og verðandi stríðsmálaráðherra, Bandaríkjanna hefur fyrirskipað ráðuneytinu að kemba samfélagsmiðla starfsfólks í leit að „óviðeigandi ummælum“ varðandi morðið á áhrifavaldinum öfgafulla Charlie Kirk. 12. september 2025 23:20