Neytendur

ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hjálmar segir að þeim hjá ORA þyki vænt um það hve ríkan sess vörur þeirra eigi í hjartastað landsmanna. Stundum þurfi þó að þora til að skora.
Hjálmar segir að þeim hjá ORA þyki vænt um það hve ríkan sess vörur þeirra eigi í hjartastað landsmanna. Stundum þurfi þó að þora til að skora.

Breytingar á fiskbúðingnum frá ORA hafa vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum. Framkvæmdastjóri segir aðdáendur þessara sögufræga réttar ekki þurfa að örvænta, menn hjá ORA hafi gert tímabundnar tilraunir við eldun búðingsins sem nú hefur verið hætt.

Það voru aðdáendur gamaldags íslensks matar á samfélagsmiðlinum Facebook sem vöktu athygli á breytingunum. Þar var bent á fyrir þremur árum að fiskbúðingurinn sem alltaf var hvítur væri nú orðinn brúnn. Umræður um málið hafa svo kviknað aftur í þessum mánuði. Einn notenda vekur athygli á því að hann sé orðinn brúnn og segist sakna þess þegar hann var hvítur.

Enn annar kvartar sáran yfir því að hafa keypt tvær dósir, búðingurinn sé brúnn í annarri, þéttur og brúnist vel en annar hvítur og laus í sér og taki illa við brúningu á pönnunni. Við fyrri færsluna liggja 275 athugasemdir, við hina seinni liggja nú 153 athugasemdir þar sem fólk keppist við að lýsa yfir óánægju með fiskbúðinginn, þó alls ekki allir. Ljóst að fólk hefur sterkar skoðanir á málinu.

Freistuðu þess að ná gamla litnum til baka

Hjálmar Örn Erlingsson, framkvæmdastjóri Ora og Gunnars Majónes, kannaðist við umræðuna þegar Vísir bar þetta undir hann. Hann segir að fyrir nokkrum árum hafi viðmið um suðu breyst, það hafi haft áhrif á hvíta litinn.

„Við þurftum að lengja suðuna sem gerði það að verkum að hann brúnaðist, þar sem mjólkurduftið brúnast við suðuna,“ útskýrir Hjálmar. Hann segir reynslu kaupenda af hvítari búðing nú skýrast af því að ORA-menn hafi verið að gera tilraun til þess að ná hvíta litnum til baka.

Erfitt að gera öllum til geðs

„Við reyndum að ná honum hvítum aftur og minnkuðum mjólkurduftið. Það féll ekki í kramið vegna þess að þá brúnast hann svo illa, þannig að núna erum við búin að skipta aftur í gamla,“ segir Hjálmar. „Þetta var ein lögun sem fór inn á markaðinn sem gerði hann hvítari og fallegri.“

Hann segir gaman að því hvað fiskbúðingurinn skipti fólk miklu máli, það sé í takti við aðrar vörur frá ORA. Fólk tengi við vörurnar, eigi af þeim hugljúfar æskuminningar.

„Þetta skiptir fólk máli og það er bara gaman að því, við erum alltaf að reyna að svara kallinu og þróa vörurnar okkar. Síðan eru það svo aðrir sem eru ekki hrifnir af því. Það er erfitt að gera öllum til geðs og stundum þarf bara pung í að gera breytingar, við ákváðum að láta reyna á þetta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×