Segjast taka ábendingum alvarlega og hafa verðlagningu til skoðunar Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 15. október 2025 13:43 Þýska fyrirtækið Heinemann rekur Ísland Duty Free. Vísir Rekstraraðili fríhafnarverslana í Keflavík, Ísland Duty Free, hafa verðlangingu á áfengi í verslunum félagsins í Keflavík til skoðunar í framhaldi af umfjöllun um verðlag. Ábendingunum sé tekið alvarlega og hyggst fyrirtækið skoða sérstaklega verðlagningu þeirra vara sem reynast dýrari í fríhöfninni en í verslunum innanlands. Vísir greindi í morgun frá úttekt Félags atvinnurekenda sem meðal annars leiddi í ljós að áfengi í fríhöfninni í Keflavík sé allt að 81% dýrara en í fríhafnarverslunum á vegum sama fyrirtækis annars staðar í Evrópu.
Fyrirtækið Heinemann, sem rekur verslanirnar, baðst undan beiðni fréttastofu um viðtal vegna málsins en bendir á að „afar fáar“ vörutegundir af þeim þúsundum sem þar séu til sölu hafi verið til umfjöllunar. Þar að auki sé verð í flugvallarverslunum á ólíkum mörkuðum ekki alltaf samanburðarhæf. Þetta kemur fram í svari Ísland Duty Free til fréttastofu í framhaldi af umfjöllun um málið. Meðal þess sem verðsamanburður Félags atvinnurekenda leiddi í ljós, og Vísir greindi frá fyrr í dag, er að gríðarlegur verðmunur sé á áfengi sem Heinemann selur í fríhafnarverslunum sínum í Frankfurt og Kaupmannahafnar annars vegar og í Keflavík hins vegar. Teknar voru fyrir nokkrar vörutegundur sem í öllum tilfellum voru umtalsvert dýrari í Keflavík en í hinum evrópsku borgunum. Sömuleiðis séu dæmi um að áfengi í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli sé dýrara en í verslunum Vínbúðarinnar innanlands, þrátt fyrir tollfrelsi í fríhöfninni. Ekki alltaf samanburðarhæft en ætla að bregðast við ábendingum „Ísland Duty Free skoðar nú þau atriði sem komið hafa fram í umfjöllun um verðlagningu á áfengi í verslunum félagsins í Keflavík. Ljóst er að verð í flugvallarverslunum á mismunandi mörkuðum eru ekki alltaf samanburðarhæf, þar sem gjöld, launakostnaður og aðrir þættir hafa áhrif á endanlegt verð til viðskiptavina,” segir meðal annars í svari fyrirtækisins til fréttastofu. „Varðandi verðsamanburð innanlands þá tekur þessi umfjöllun til afar fárra vörunúmera af þeim þúsundum vara sem Ísland Duty Free er með í sölu í verslunum sínum. Félagið tekur þessum ábendingum engu að síður alvarlega og mun skoða sérstaklega þær vörur sem um ræðir. Ísland Duty Free er með mikinn fjölda vörutegunda á samkeppnishæfum verðum og hyggst halda áfram að bjóða viðskiptavinum sínum gæða vörur á góðu verði,“ segir ennfremur í svarinu frá talsmönnum Heinemann.
Keflavíkurflugvöllur Áfengi Neytendur Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira