Haaland skaut City á toppinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. október 2025 16:00 Erling Haaland kemur Manchester City yfir gegn Everton með hörkuskalla. getty/Carl Recine Ekkert fær Erling Haaland stöðvað en hann skoraði bæði mörk Manchester City þegar liðið lagði Everton að velli, 2-0, í ensku úrvalsdeildinni í dag. Haaland er langmarkahæstur í ensku úrvalsdeildinni með ellefu mörk en hann hefur skorað í öllum leikjum City nema einum. Norski framherjinn skoraði fyrra markið með skalla eftir fyrirgjöf frá Nico O'Reilly á 58. mínútu. Fimm mínútum síðar bætti hann öðru marki með skoti úr vítateignum eftir sendingu Savinhos. Með sigrinum tyllti City sér á topp deildarinnar með sextán stig en liðið hefur unnið þrjá leiki í röð. Arsenal getur endurheimt toppsætið ef liðið fær stig gegn Fulham í leik sem hefst klukkan 16:30. Everton er í 10. sæti deildarinnar með ellefu stig. Enski boltinn Fótbolti
Breiðablik - Víkingur 1-2 | Glæsimark hjá Tarik gerði skráveifu í Evrópudraum Blika Íslenski boltinn
Breiðablik - Víkingur 1-2 | Glæsimark hjá Tarik gerði skráveifu í Evrópudraum Blika Íslenski boltinn