Norðlæg átt og lengst af þurrt suðvestantil Atli Ísleifsson skrifar 4. nóvember 2025 07:11 Hiti á landinu verður á bilinu núll til sex stig, mildast syðst. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu, en aðeins hvassari á Vestfjörðum í fyrstu.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði dálítil slydda eða þokusuld norðan- og austantil og lítilsháttar væta sunnanlands, en lengst af þurrt á Suðvesturlandi. Hiti verður á bilinu núll til sex stig, mildast syðst. „Á morgun verður austlæg átt 3-10 m/s, en 10-15 við suðurströndina. Víða dálítil rigning eða súld, en bætir í úrkomu sunnantil eftir hádegi. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag er útlit fyrir vaxandi austan- og norðaustanátt, 10-18 m/s um kvöldið. Dálítil rigning af og til, en lengst af þurrt fyrir norðan. Hiti 2 til 7 stig að deginum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag og fimmtudag: Austlæg átt 3-8 m/s, en 8-13 við suðurströndina. Skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar skúrir eða él, en lengst af þurrt norðvestanlands. Hiti 0 til 7 stig að deginum, mildast syðst. Á föstudag: Norðaustan 5-13, en heldur hvassari syðst. Snjókoma eða rigning með köflum sunnan- og austanlands, en þurrt að kalla norðan- og vestantil. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Norðaustan 8-15. Rigning eða slydda, en snjókoma á heiðum. Styttir upp á Suðvestur- og Vesturlandi, en hvessir og fer að rigna þar um kvöldið. Hiti víða á bilinu 0 til 5 stig. Á sunnudag: Austan- og suðaustanátt og rigning eða slydda, einkum sunnan- og austanlands. Hiti 2 til 10 stig, mildast á Suðurlandi. Á mánudag: Austanátt með rigningu, en slydda eða snjókoma á heiðum. Dregur úr ofankomu norðanlands þegar líður á daginn. Hiti 4 til 9 stig.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira