Verðmerkingum 49 verslana ábótavant Árni Sæberg skrifar 4. nóvember 2025 15:38 Útilíf var meðal þeirra verslana sem hlaut sekt. Vísir/Vilhelm Neytendastofa framkvæmdi nýverið skoðun á ástandi verðmerkinga hjá 142 verslunum og þjónustuveitendum í Kringlunni og Smáralind. Gerðar voru athugasemdir við verðmerkingar í 49 verslunum, þar sem ástandi verðmerkinga var ábótavant. Sjö fyrirtæki hlutu sektir fyrir að gera ekki úrbætur á verðmerkingum.
Í tilkynningu þess efnis á vef Neytendastofu segir að í verðmerkingareftirliti sé skoðað hvort söluvörur séu veðmerktar, hvar sem þær eru sýnilegar eða aðgengilegar neytendum. Einnig sé skoðað hvort verðskrá yfir framboðna þjónustu sé sýnileg.Í verðmerkingareftirliti Neytendastofu hafi starfsmenn stofnunarinnar gert athugasemdir við verðmerkingar í 49 verslunum, þar sem ástandi verðmerkinga var ábótavant, og stofnunin hafi kvatt til úrbóta. Skoðuninni hafi að lokum verið fylgt eftir með annarri heimsókn og nú hafi stofnunin sektað sjö fyrirtæki, sem hafi ekki gert fullnægjandi úrbætur á verðmerkingum. Í ákvörðunum stofnunarinnar má sjá að Polern O. Pyret, Jói Útherji, Home & You og Local hafi hlotið fimmtíu þúsund króna sekt. Drífa ehf., sem rekur Icewear Magasín og Mr. Heklu, Útilíf, sem rekur verslanir bæði í Kringlunni og Smáralind, og Föt og skór ehf, sem rekur Herragarðinn og Boss búðina, hafi hlotið hundrað þúsund króna sekt.
Neytendur Verðlag Verslun Kringlan Smáralind Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira