Sviðsstjóri lögsækir Ríkisendurskoðun Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. nóvember 2025 21:09 Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi. Vísir/Sigurjón Sviðsstjóri hjá Ríkisendurskoðun hefur höfðað mál á hendur embættinu vegna ákvörðunar ríkisendurskoðanda um að færa hann til í starfi. Málið er höfðað hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi staðfesti þetta í samtali við mbl sem greindi frá. Hann á að hafa sent út tölvupóst til allra starfsmanna Ríkisendurskoðunar og greint frá málinu. Sviðsstjórinn telur að með því að færa hann til í starfi hafi Guðmundur brotið 19. grein starfsmannalaga og krefst þess að ákvörðunin verði felld úr gildi og úrskurðuð ólögmæt. „Það er eðlilegt að starfsfólk sem telur á sér brotið geti leitað réttar síns fyrir dómstólum. Nú hefur málinu verið stefnt í þann farveg og ég legg bara áherslu á rétta og góða málsmeðferð,“ segir Guðmundur í samtali við mbl. Ófremdarástandið á borði forseta þingsins Ríkisendurskoðandi hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarið eftir að greint var frá að ákveðið ófremdarástand ríkti innan veggja stofnunarinnar. Ítrekað hafi komið upp svokölluð EKKO-mál sem varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi. Í árlegri starfsánægjukönnun Ríkisendurskoðunar versnuðu niðurstöður milli ára. Þá eru þrír sviðstjórar í veikindaleyfi. Jóhannes Jónsson er einn þriggja sviðsstjóranna sem eru í veikindaleyfi en hann hefur sagt starfi sínu lausu eftir að hafa orðið vitni að fjölda alvarlegra mála hjá embættinu. Hann sagði aðkomu Guðmundar gera málin sérstaklega flókin og erfið. Málið er nú komið á borð forsætisnefndar Alþingis en næsti fundur nefndarinnar er á mánudag. Fer það eftir verkefnastöðu hvort málið komist að á þeim fundi.
Ríkisendurskoðun Alþingi Stjórnsýsla Vinnustaðurinn Mannauðsmál Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira