Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2025 07:19 Hiti á landinu verður núll til fimm stig að deginum. Vísir/Vilhelm Skil frá lægð á Grænlandshafi ganga nú frá vestri til austurs yfir landið og fylgir þeim suðaustlæg átt, víða kaldi eða strekkingur og rigning eða slydda með köflum, en snjókoma inn til landsins.
Á vef Veðurstofunnar segir að þá hlýni einnig í veðri og geti orðið flughált á stöku stað á suðvestanverðu landinu í morgunsárið. „Að baki skilunum tekur við hæg suðvestlæg átt með smáskúrum, um hádegisbil vestanlands en undir kvöld eystra. Hiti 0 til 5 stig að deginum. Fremur hæg breytileg átt á morgun og víða slydduél eða él, en yfirleitt bjartviðri á Suðausturlandi. Kólnar heldur í veðri. Annað kvöld er útlit fyrir vaxandi austanátt. Á fimmtudag gengur í norðaustan allhvassan eða hvassan vind með snjókomu, en stormur við suðurströndina,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Breytileg átt 3-10 m/s og él eða slydduél, en yfirleitt þurrt og bjart suðaustantil. Hiti um eða undir frostmarki. Vaxandi austanátt við suðurströndina um kvöldið. Á fimmtudag: Norðaustan 13-20, en stormur við suðausturströndina. Víða snjókoma eða slydda, en úrkomuminna vestanlands. Hiti í kringum frostmark fyrir norðan, en 1 til 6 stig sunnantil. Á föstudag: Norðan 10-15 og snjókoma eða él, en þurrt sunnan heiða. Dregur úr ofankomu og vindi síðdegis. Kólnar í veðri. Á laugardag: Breytileg átt 3-8 og víða úrkomulítið, en snjókoma syðst. Frost 2 til 14 stig, kaldast inn til landsins fyrir norðan. Á sunnudag: Útlit fyrir ákveðna austlæga átt með slyddu eða snjókomu og hlýnandi veðri. Á mánudag (fullveldisdagurinn): Norðaustlæg eða breytileg átt og slydda eða snjókoma með köflum. Hiti í kringum frostmark.
Veður Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira