Karólína lagði upp en Hlín meiddist Valur Páll Eiríksson skrifar 7. desember 2025 14:31 Hlín spilaði 35 mínútur í dag. Stuart Leggett/MI News/NurPhoto via Getty Images Hlín Eiríksdóttir fór meidd af velli í 3-0 tapi Leicester City fyrir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Hlín var í byrjunarliði Leicester er Manchester City var í heimsókn í dag en fór meidd af velli eftir rúmlega hálftíma leik. Þá var staðan 0-0 og markalaust var allt fram á 74. mínútu þegar jamaíska markadrottningin Khadija Shaw kom City yfir. Shaw skoraði öðru sinni á 83. mínútu og brasilíski kantmaðurinn Kerolin skoraði þriðja mark City í uppbótartíma. City vann 3-0 sigur og er á toppi deildarinnar með 27 stig eftir tíu leiki. Chelsea er með 21 stig í öðru sæti en á leik inni. Leicester er í níunda sæti af tólf liðum, með sex stig, fjórum fyrir ofan botnlið Liverpool. Karólína lagði upp í stórsigri.Antonino Lagana - Inter/Inter via Getty Images Á Ítalíu vann Inter 5-0 sigur á Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni. Cecilía Rán Rúnarsdóttir varði mark Inter og hélt hreinu og stalla hennar Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lagði upp eitt marka Inter. Í Þýskalandi spilaði Jón Dagur Þorsteinsson síðustu tíu mínúturnar með Herthu Berlín í 2-0 tapi fyrir Magdeburg á heimavelli. Þar með lauk heljarinnar sigurgöngu Herthu en liðið er með 26 stig í 7. sæti í jafnri deildinni. Aðeins þrjú stig eru upp í 3. sætið sem er umspilssæti um sæti í efstu deild.
Enski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira