Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Kviss 11. desember 2025 08:53 Kviss-spilin eru langvinsælust á Íslandi fyrir jólin Pöbbkviss 5, Krakkakviss 5 og Stubbakviss eru þrjú söluhæstu spil á Íslandi fyrir þessi jól.
Vinsældir Kviss-spilanna hafa verið ótrúlegar undanfarin ár en öll fyrri Pöbbkviss-spilin voru einnig söluhæstu spil ársins árin sem þau komu út. Höfundur spilanna er sjónvarpsmaðurinn og uppistandarinn Björn Bragi Arnarsson sem stýrir hinum geysivinsælu þáttum Kviss á Sýn. Skemmtilegar spurningar og allir geta verið með „Spurningarnar í spilunum eiga fyrst og fremst að vera skemmtilegar og það geta allir verið með,“ segir Björn Bragi. „Það er gaman að svara spurningum þegar maður veit eitthvað og hefur áhuga á því sem er verið að spyrja um.“ „Pöbbkviss er söluhæsta spilið hjá okkur enn eitt árið,“ segir Daði Ingólfsson í Hagkaup. Daði Ingólfsson, vörustjóri hjá Hagkaup, segir að vinsældir Kviss-spilanna séu einstakar. „Pöbbkviss er söluhæsta spilið hjá okkur enn eitt árið og Krakkakviss og Stubbakviss koma þar á eftir. Fólk þekkir þessi spil vel og það eru margir sem bíða með eftirvæntingu eftir því að þau lendi í verslunum okkar á haustin,“ segir Daði. Pöbbkviss 5 – eigið Kviss heima í stofu Pöbbkviss 5 inniheldur þúsund nýjar spurningar. Flokkarnir í spilinu eru þeir sömu og í sjónvarpsþættinum Kviss, það eru almennar spurningar, frægar línur, fimmfaldur og þrjú hint. „Við spyrjum út í hluti sem eru allt í kringum okkur í hversdagsleikanum – nammi, mat, auglýsingaslagorð, tónlist, sjónvarpsþætti og þar fram eftir götunum,“ segir Björn Bragi. „Ég heyri frá mörgum sem segjast almennt ekki hafa gaman af spurningaspilum en eru samt að spila Pöbbkviss. Það finnst mér ótrúlega gaman.“ Björn Bragi segir að rétt eins og í Kvissinu sjálfu sé það ekki endilega mesti spurninganördinn sem sé að fara að vinna. „Það er ekki endilega sá sem er með doktorsgráðu í sagnfræði sem er að fara að vinna í Pöbbkviss.“ Krakkakviss 5 og Krakkakviss Hrekkjavaka „Þetta eru spurningar sem krakkar geta svarað og þá er gaman að spila,“ segir Björn Bragi. Nýju Krakkakviss-spilin í ár eru Krakkakviss 5 og Krakkakviss Hrekkjavaka. Krakkakviss-spilin hafa notið mikilla vinsælda hjá krökkum og verið söluhæstu krakkaspil á Íslandi frá því að þau komu fyrst út árið 2020. Nýju spilin Krakkakviss 5 og Krakkakviss Hrekkjavaka eru að slá í gegn hjá krökkum. „Ég held að aðalástæðan fyrir því að krakkar hafa tekið Krakkakviss-spilunum svona vel sé sú að við erum að spyrja um hluti sem þau hafa áhuga á. Þetta eru spurningar sem þau geta svarað og þá er gaman að spila,“ segir Björn Bragi. Krakkakviss-spilin eru mikið notuð í skólum og ýmis konar frístundastarfi, enda eru þau bæði skemmtileg og fræðandi. „Mér finnst ótrúlega gaman að heyra að það sé verið að nota spilin til að æfa lestur og þess háttar,“ segir Björn Bragi. Stubbakviss fyrir yngstu börnin Stubbakviss inniheldur stórar og fallegar myndir og einfaldar spurningar fyrir börn. Stubbakviss er sömuleiðis nýtt spil en það er hugsað fyrir börn á leikskólaaldri. „Þetta er í fyrsta sinn sem við gerum Stubbakviss. Það er ótrúlega gaman að sjá þau spila Stubbakviss og þau eru miklu betri í því en fólk hefði kannski grunað. Stubbakviss inniheldur stórar og fallegar myndir og einfaldar spurningar á borð við: hvaða lag er sungið þegar einhver á afmæli? og hvernig er hárið hennar Línu Langsokks á litinn? „Stubbakviss er fyrir yngstu börnin. Það er ótrúlega gaman að sjá þau spila Stubbakviss og þau eru miklu betri í því en fólk hefði kannski grunað,“ segir Björn Bragi. Klippa: Nýtt spil fyrir krakka - Stubbakviss Pöbbkviss-serían Pöbbkviss 1 Pöbbkviss 2 Pöbbkviss 3 Pöbbkviss 4 Pöbbkviss 5 Krakkakviss-serían Krakkakviss 1 Krakkakviss 2 Krakkakviss 3 Krakkakviss 4 Krakkakviss 5 Krakkaleikar Jóla-Krakkakviss Krakkakviss Fótbolti Krakkakviss Heimurinn Krakkakviss Hrekkjavaka Stubbakviss
Kviss Jól Krakkar Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira