Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Atli Ísleifsson skrifar 10. desember 2025 07:08 Hiti verður á bilinu eitt til níu stig og mildast syðst. Vísir/Vilhelm Kröpp lægð suður af Færeyjum er nú á hreyfingu norður og veldur hvassri norðaustanátt eða -stormi í dag.
Á vef Veðurstofunnar segir að gefnar hafi verið út gular viðvaranir vegna vinds á Vestfjörðum og Suðausturlandi, en vegna hríðar á miðhálendinu. Fram kemur að það verði rigning eða slydda öðru hverju víða um land, en lengst af þurrt á Suður- og Vesturlandi. Lægðin fjarlægist norður í haf í kvöld og dregur þá úr vindi. Hiti verður á bilinu eitt til níu stig og mildast syðst. „Á morgun, fimmtudag kemur ný lægð sunnan úr hafi, sem dýpkar ört, en virðist ætla að sveigja til suðvesturs frá landinu. Gerir þá austanhvassviðri eða -storm með rigningu eða slyddu, en snjókomu til fjalla. Hægari suðaustlæg átt og skúrir eða slydduél sunnantli seinnipartinn, en rofar smám saman til fyrir norðan. Sama lægð nálgast aftur á föstudag með allhvassri eða hvassri suðaustanátt, skúrum eða rigningu, en þurru veðri fyrir norðan. Áfram þó fremur milt veður,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Gengur í austan 15-25 m/s með rigningu eða slyddu, en en snjókomu til fjalla, talsverð úrkoma um tíma suðaustantil. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast syðst. Á föstudag: Austan og suðaustan 10-18 m/s og skúrir eða él, en lengst af þurrt norðantil. Hiti 1 til 6 stig. Á laugardag: Ákveðin suðlæg átt, en norðaustlægari á Vestfjörðum. Slydda eða snjókoma með köflum, en skúrir eða él suðvestantil síðdegis. Hiti 0 til 5 stig. Á sunnudag: Útlit fyrir stífa suðlæga eða breytilega átt éljum eða snjókomu, einkum sunnan heiða og hita nálægt frostmarki. Á mánudag og þriðjudag: Líklega breytileg átt, dálítil él og svalt í veðri.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira