Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. desember 2025 16:15 Bonnie Blue hefur skapað sér nafn á árinu fyrir umdeilda iðju. Klámleikkonan Bonnie Blue, sem heitir réttu nafni Tia Billinger, slapp við þungan dóm í Indónesíu og þarf einungis að greiða sekt sem nemur um 1500 íslenskum krónum. Hún verður jafnframt að yfirgefa landið og flýgur á brot í kvöld.
Blue, sem er 26 ára Englendingur, var handtekin í ferðamannaparadísinni Balí ásamt fjórtán áströlskum karlmönnum sem síðar var sleppt. Tveir Bretar og einn ástralskur maður voru hins vegar úrskurðaðir í gæsluvarðhald ásamt henni. Lögregla grunaði hópinn um að hafa framleitt klámefni. Í Indónesíu eru ströng viðurlög við framleiðslu, dreifingu og opinberri birtingu klámefnis. Fyrir slík brot hefði Billinger getað átt yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsisdóm og sekt upp á hátt í fjörutíu milljónir íslenskra króna. Í leit að ungum karlmönnum Rannsókn lögreglu virðist ekki hafa leitt í ljós nein sönnunargögn þess efnis að hópurinn hefði í raun framleitt eða dreift ólöglegu klámefni. Að mati sérfræðinga í refsirétti voru skilyrði klámlaganna því ekki uppfyllt, að því er fram kemur í umfjöllun staðarmiðilsins Media Indonesia. Flestir íbúar á Balí eru hindúatrúar en milljónir ferðamanna heimsækja staðinn á ári hverju. Balí er þó partur af þeim hluta Indónesíu þar sem meirihlutinn aðhyllist múslimatrú sem leggur blátt bann við framleiðslu á klámi. Blue hefur öðlast heimsfrægð fyrir framleiðslu á klámi með miklum fjölda karlmanna hverju sinni. Í myndböndum á hennar vegum hefur sést til hennar heimsækja háskóla í leit að karlmönnum sem eru nýlega orðnir lögráða. Ferðalag hennar ytra var stílað upp á tímabil þar sem skólafrí er í Ástralíu og háskólanemar á faraldsfæti, svo sem á Balí. Ekki gild ökuréttindi Fjórir sakborningar lýstu því yfir að þeir hefðu komið til Balí þann 6. nóvember í þeim tilgangi að búa til sjónvarpsefni, þó ekki klámefni. Þrátt fyrir að einkamyndband með kynferðislegu efni hafi fundist í eigu eins þeirra, sagði ákæruvaldið að því hefði ekki verið dreift og því engin lög verið brotin. Blue var þó ákærð fyrir að hafa keypt og notað pallbíl án gildra skjala og þar með brotið umferðarlög. Henni og samstarfsmanni var boðið að velja milli eins mánaðar fangelsisvistar eða sektar að fjárhæð 200 þúsund indónesískra rúpía, sem samsvarar um 1500 íslenskum krónum. Bæði völdu sektina, samkvæmt US Weekly. Í dómsal var Blue vöruð við því að brjóta ekki umferðarlög Indónesíu aftur og svaraði hún að þau skilaboð væru móttekin. Eftir handtökuna er Blue komin á svartan lista í Indónesíu til tíu ára og gert að yfirgefa landið innan 48 klukkustunda. Ástæðan er brot á reglum um ferðamannavegabréfsáritun, nánar tiltekið að hafa unnið án tilskilins leyfis. Samkvæmt upplýsingum frá innflytjendayfirvöldum fundust vísbendingar um misnotkun á bæði KITAS-dvalarleyfum og ferðamannavegabréfsáritunum, sem notuð hafi verið til að vinna við framleiðslu á efni í atvinnuskyni. Edward Pankahila, lögmaður Blue, sagði við The Telegraph að Blue hygðist breyta ferðaplönun sínum og myndi yfirgefa Indónesíu með flugi í kvöld.
Indónesía Bretland Klám Hollywood Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Peabo Bryson er látinn Tónlist Valin versti ljósmyndari heims Lífið Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira