Dálítil snjókoma norðantil en þurrt sunnan heiða Atli Ísleifsson skrifar 15. desember 2025 07:09 Reikna má með vægu frosti í dag. Veðurstofan Útlit er fyrir norðlæga eða breytilega átt á bilinu þrír til tíu metrar á sekúndu í dag. Gera má ráð fyrir dálítilli snjókomu á norðanverðu landinu, en þurrt að mestu sunnan heiða.
Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við vægu frosti. „Breytileg átt á morgun og vindhraði svipaður og í dag eða fremur hægur víðast hvar. Yfirleitt þurrt og bjart veður, en búast má við éljum á stöku stað við ströndina. Það herðir á frostinu, kaldast um eða yfir 10 stig í innsveitum fyrir norðan. Það eru semsagt horfur á tiltölulega rólegu og köldu veðri í dag og á morgun. Það á síðan eftir að breytast. Spár gera ráð fyrir að lægð á Grænlandshafi sendi skil í átt að landinu aðfaranótt miðvikudags. Á miðvikudag má því búast við allhvassri eða hvassri austanátt með úrkomu. Það hlýnar og úrkoman verður yfirleitt á formi rigningar eða slyddu á sunnanverðu landinu. Norðantil hlýnar seinna og því má búast við snjókomu eða slyddu þar fram eftir degi. Seinnipart miðvikudags dregur úr vindinum sunnan- og austanlands, en hvass norðaustanstrengur helst áfram inni á landinu norðvestanverðu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Breytileg átt 3-10 m/s. Víða þurrt og bjart veður, en lítilsháttar él úti við norðurströndina og stöku skúrir eða él á Suðurlandi. Frostlaust syðst á landinu, annars frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á miðvikudag: Austan 13-20. Víða rigning eða slydda með hita 1 til 6 stig, en snjókoma eða slydda norðantil og hiti kringum frostmark. Dregur úr vindi síðdegis, en áfram hvöss norðaustanátt um landið norðvestanvert. Á fimmtudag: Norðaustan 10-18 um landið norðvestan- og vestanvert, annars hægari vindur. Slydda eða snjókoma á Vestfjörðum og Norðurlandi, en skúrir eða rigning sunnanlands. Hiti 0 til 5 stig, mildast syðst. Á föstudag og laugardag: Norðlæg eða breytileg átt og rigning eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum. Hiti kringum frostmark.Á sunnudag (vetrarsólstöður): Suðlæg átt og víða þurrt veður. Frost um mestallt land, en frostlaust við suður- og vesturströndina.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira