Sjórinn er enn á sínum stað Lestrarklefinn 16. desember 2025 10:01 Þórdís Dröfn Andrésdóttir hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár fyrir ljóðahandritið Síðasta sumar lífsins. Bók Þórdísar Drafnar Andrésdóttur er til umfjöllunar á menningarvefnum Lestrarklefinn. Sjöfn Asare segir þetta um bókina.
Þórdís Dröfn Andrésdóttir hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár fyrir ljóðahandritið Síðasta sumar lífsins sem var í framhaldinu gefið út hjá Benedikt. Í bókinni fer ljóðmælandi yfir síðasta sumar lífsins, og er látið liggja á milli hluta hvaða merkingu þessi endalok hafa, hvort það er endalok ástarsambands, tímabils eða allrar veraldarinnar er eitthvað sem lesandi getur fundið með sjálfum sér. Sjöfn Asare fjallar reglulega um bækur á menningarvefnum Lestrarklefinn. Svona erum við ströndin mín og ég tættar því blint dýr vildi sjá sjóinn (bls. 7) Endalok eru jafn falleg og þau eru hræðileg Í mínum lesheimi er heimurinn að enda. Ég finn yfirvofandi vána og endalok veraldarinnar umlykja fullkominn paradísarheim þar sem parið liggur í sínum síðustu faðmlögum. Við fáum lítið að vita um þetta par, kyn þeirra kemur aldrei fram, ekki nöfn þeirra eða útlit, aldur eða fyrri störf. Við vitum bara að þetta par eru tveir aðilar sem elskast og elska hvorn annan. Og það er meira en nóg. Titrandi viðkvæmnin í lýsingum höfundar á umhverfinu, hverfulleikanum og yfirvofandi vá lét mig fá gæsahúð um allan líkamann. Nú fæ ég ekki sérstaklega oft gæsahúð, nema það sé tiltölulega kalt, en hvernig orðin smjúga inn í sálina og fanga sammannlegan anda er einstakt og húðin mín vissi það áður en heilinn meðtók hversu merkileg lesningin var. Nú mega sumir ætla að hér sé ýkt, en svo er ekki. Þessi dásamlega fallega og djúpa ljóðabók er strax komin í flokk með þeim betri sem ég hef lesið í lífi mínu. Það er ákveðinn hópur af bókum sem búa við hjarta mitt og festu sess sinn þar um leið og ég las þær fyrst. Mamma þarf að sofa, eftir Díönu Sjöfn Jóhannsdóttur, Howl eftir Allen Ginsberg, Don‘t Call Us Dead eftir Danez Smith, Einurð eftir Draumeyju Aradóttur og svo mætti áfram telja. Síðasta sumar lífsins hefur sömu áhrif á mig, þau að það að lesa hana er meira en bara að lesa, meira en bara að lesa góða bók eða virkilega góða bók, hún snertir ekki bara sálina mína heldur eitthvað djúpt í kjarnanum sem ég held að sé hugsanlega mennskan sjálf. Lifandi ljóðsaga Hvað get ég sagt meira? Ekki margt. Myndmálið er fallegt og sterkt, agnir af vísbendingum sem bjóða lesanda að feta sig áfram eftir textanum eru vel skipulagðar og þeim dreift um ljóðsöguna sem fléttar sig í einni heild um síðurnar. Brot bókarinnar er auk þessa gullfallegt, daufir litirnir ríma vel við lágstemmda fegurðina, máð myndin af sjó og himni undir fótsporum kuðunga og skelja fanga einsemdina en um leið samrunann við eitthvað annað og stærra og meira en ein manneskja, ein skel og eitt sandkorn geta nokkru sinni verið. Guð er til staðar í bókinni en hann er ekki þar sem þú býst við að finna hann. Hann liggur á milli orðanna, hann er gullfiskur, hann er eilífðin, hann er sæði í sjávarmálinu. Hann er lífið allt og lífið er að enda. Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Menning Bókaútgáfa Jól Mest lesið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Fleiri fréttir „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira