Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Atli Ísleifsson skrifar 17. desember 2025 14:06 Álver Alcoa í Reyðarfirði. Vísir/Arnar Alcoa Fjarðaál sf. hefur stefnt Eimskipafélagi Íslands að nýju vegna meints tjóns félagsins af völdum samráðs Eimskipa og Samskipa á árunum 2008 til 2013.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip. Alcoa Fjarðaál hafði áður stefnt Eimskip vegna málsins og farið fram á þrjá milljarða króna í skaðabætur en fallið var frá kröfunni í maí síðastliðnum, skömmu áður en taka átti málið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í þetta skiptið er stefnt til viðurkenningar á óskiptri bótaskyldu, án fjárhæðar. Í tilkynningunni frá Eimskip segir að í maí hafi verið tekin ákvörðun í maí síðastliðnum um að fella niður skaðabótamál gegn Eimskip og greiða félaginu málskostnað. Hefur félagið nú höfðað mál að nýju vegna þessa, þó þannig að nú er engin fjárkrafa gerð heldur stefnt til viðurkenningar á bótaskyldu án fjárhæðar. „Málatilbúnaður Alcoa, í málinu sem það felldi niður, byggði nær alfarið á minnisblaði ráðgjafafyrirtækisins Analytica ehf. Ráðgjafafyrirtækið Hagrannsóknir sf. komst að afgerandi niðurstöðu um að vankantar í minnisblaði Analytica væru svo alvarlegir og ályktanir svo rangar að minnisblaðið væri í heild ónothæft sem mat á meintu tjóni. Skýrsla Hagrannsókna stendur óhögguð, en í nýrri stefnu er þrátt fyrir það enn byggt á minnisblaði Analytica, án þess að minnast einu orði á skýrslu Hagrannsókna sf. sem hnekkti niðurstöðum Analytica. Það var og er mat Eimskips að ekkert tilefni sé til málsóknar stefnanda, enda eru skilyrði skaðabótaskyldu ekki uppfyllt. Þá er ætlað tjón stefnanda engum haldbærum gögnum stutt,“ segir í tilkynningunni. Sagt hafa kostað 62 milljarða króna Árið 2023 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Eimskip og Samskip hefðu haft ólöglegt samráð á árunum 2008 til 2013. Ráðgjafafyrirtækið Analytica vann frummat fyrir Félag atvinnurekenda, Neytendasamtökin og VR, en samkvæmt því hafði ólöglegt samráð Eimskipa og Samskipa kostað íslenskt samfélag tæplega 62 milljarða króna á fyrrnefndu tímabili.
Ólöglegt samráð Eimskips og Samskipa Eimskip Samkeppnismál Skipaflutningar Fjarðabyggð Áliðnaður Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira