Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. desember 2025 09:50 Preston, Travolta og Keough. Preston lést úr krabbameini árið 2020 en árið 2009 misstu hún og Travolta son sinn Jett. Hann þjáðist af Kawasaki sjúkdómnum, sem veldur flogum. Getty Nýjar vendingar hafa átt sér stað í langvarandi baráttu um bú Lisu Marie Presley, dóttur Elvis Presley og Priscillu Presley, sem lést 54 ára árið 2023. Í gögnum sem fyrrverandi viðskiptafélagar Priscillu hafa lagt fram fyrir dómstólum segir að bæði Lisa Marie og dóttir hennar, leikkonan Riley Keough, hafi gefið egg til John Travolta og Kelly Preston. Ben, yngsti sonur þeirra hjóna, hafi verið getinn með eggi frá Keough.
Gögnin voru lögð fram í máli Brigitte Kruse og Kevin Fialko gegn Navarone Garibaldi Garcia, syni Priscillu og Marco Garibaldi Garcia. Í þeim segir meðal annars að þegar Lisa Marie lést, hafi öll fjölskyldan barist um að fá greitt úr dánarbúinu og notað Kruse og Fialko sem milliliði og samningamenn. Michael Lockwood, fyrrverandi eiginamaður Lisu Marie og faðir barna hennar Harper og Finley Lockwood, er sagður hafa sett sig í samband við Kruse og sagt sig og börnin á vonarvöl. Þá er haft eftir honum að Lisa Marie hafi gefið egg til Travolta og Preston, þar sem Preston, sem nú er látin, gat ekki eignast eigin börn. Þess er ekki getið hvort barn kom undir úr eggjum Lisu Marie. Lockwood hélt því hins vegar fram við Kruse að Travolta hefði leitað aftur til fjölskyldunar um eggjagjöf árið 2010 en ekki viljað egg Lisu Marie, þar sem hún hefði neytt heróíns. Úr hefði orðið að Keough gaf egg og að hún sé líffræðileg móðir Benjamin Travolta, yngsta sonar Travolta og Preston. Árið áður, 2009, lést elsti sonur þeirra hjóna, Jett, ein þau eiga einnig dótturina Ellu Travolta. Samkvæmt gögnunum vildi Lockwood freista þess að nota upplýsingarnar til að tryggja sér og dætrum sínum fjármuni úr búi Lisu Marie en Garcia er sagður hafa orðið ævareiður þegar hann heyrði af þessu, þar sem Priscilla hefði lofað honum að hann yrði eini karlinn til að verða „konungur“ eins og afi hans Elvis. Garcia er sagður hafa heimtað milljónir í framhaldinu. Hvorki Keough né Travolta hafa tjáð sig um málið. People greindi frá.
Hollywood Bandaríkin Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira