Illugi Jökuls gómaði rottuunga eftir klukkutíma eltingaleik Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. desember 2025 15:44 Unginn var í góðum höndum, eða kannski hönskum, eftir langan eltingaleik. Lítill rottuungi slysaðist inn á tveggja katta heimili Illuga Jökulssonar fyrr í dag. Rottubjörgunarsveitin var kölluð út og eftir klukkutíma eltingaleik var unginn gómaður með mjúkum ofnhönskum og honum sleppt út í stórt blómabeð. „
Ef þið skylduð ekki hafa áttað ykkur á því, þá er ég rottubjörgunarsveitin,“ segir Illugi Jökulsson, rithöfundur og útvarpsmaður, í Facebook-færslu sem hann birti upp úr tvöleytinu. Hafði hann þó aðeins átt við færsluna því upphaflega taldi hann um litla mús að ræða, fróður vinur benti honum á að um Rattus norvegius væri að ræða. Kettirnir tveir bíða færis. „Pattaralegur rottuungi laumaðist inn í hús við Grettisgötuna til að leita sér að einhverju í áramótamatinn en áttaði sig of seint á því að í íbúðinni búa tveir kettir. Rottan tók það þjóðráð að fela sig undir ísskápnum og síðar lengi undir ýmsum ofnum heimilisins.“ „Þá var rottubjörgunarsveitin kölluð út og ég gómaði hana eftir samtals klukkutíma eltingarleik og bar hana út í góða veðrið með gömlum ofnahanska þar eð hún hneigðist til að bíta björgunarsveitina,“ skrifar hann. Illugi segist hafa sleppt rottunni með dóttur sinni, Veru Illugadóttur, í stórt blómabeð þar í nágrenninu. Vonar hann að hún sé komin heim til sín að segja sínu fólki frá þeim ævintýrum sem hún lenti í. Á leið út! „Þetta verður góður kafli í Reykvískum húsamúsasögum, sbr. Íslendinga sögur. Fyrir hönd allrar dýrúðar þakka ég ykkur,“ skrifar Þórunn Jarla Valdimarsdóttir við færsluna. „Slasaðist músin?“ spurði Kristján Atli Sævarsson í ummælum. „Nei, ég fór um hana mjúkum ofnahanskahöndum,“ svaraði Illugi þá.
Dýr Kettir Reykjavík Grín og gaman Dýraheilbrigði Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Sjá meira