Neytendur eigi meira inni Sunna Sæmundsdóttir skrifar 2. janúar 2026 12:45 Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. vísir/samsett Eldsneytisverð hefur lækkað hressilega eftir áramót en neytendur eiga frekari lækkun inni, segir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Rekstrarkostnaður bíla hækki hjá flestum og sérstaklega hjá þeim sem reka eyðslugranna bíla.
Bensínlíter hefur ekki verið ódýrari hér á landi síðan haustið 2017. Sá ódýrasti en nú, líkt og þá, hjá Costco í Garðabæ þar sem hann kostar 171 krónu. Bensínverð lækkaði hressilega 1. janúar þegar lög um kílómetragjald tóku gildi, eða að meðaltali um þriðjung. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir lækkanir í samræmi við væntingar, að því er varðar þann hluta er nemur skattalækkun vegna kílómetragjaldsins. „En eins og við höfum bent á að þá hefur verið óbreytt eldsneytisverð á íslenska markaðnum alveg frá því í nóvember, á meðan heimsmarkaðsverð hefur verið að ganga niður,“ segir Runólfur. Neytendur ættu því að eiga inni frekari lækkun að mati Runólfs; álagning olíufélaganna sé nú ríflegri en áður. Hann segir vel fylgst með verðþróuninni. Allt að fimmtungi dýrara Ökumenn þurfa nú mánaðarlega að standa skil á kilómetragjaldi, sem er 6,95 krónur á hvern ekinn kílómetra fyrir bíla og jeppa undir tíu tonnum. Runólfur segir breytinguna koma heimilum misvel. „Það er einhver hækkun hjá öllum. Rafbílar fara úr sex í 6,95 krónur, þannig að kostnaður vegna orkunotkunar og kílómetragjalds stígur töluvert umfram verðlagsþróun, eða á milli sjö til átta prósent. Þetta er okkar útreikningur miðað við ökutæki sem ekið er tuttugu þúsund kílómetra á ári,“ segir Runólfur. „Og ef við erum að tala um einhvern svona dísilbíl sem eyðir tólf lítrum á hundraðið, að þá munu eigendur þeirra njóta góðs af breytingunum og borga um sjö prósentum minna við rekstur út af orkunotkun og kílómetragjaldi heldur en þeir gerðu í desember. Svo er það lítill dísilbíll, sem er neyslugrannur og notar til dæims bara fimm lítra á hundraðið. Eigandi svoleiðis ökutækis er að borga um nítján prósentum meira eftir kerfisbreytingu heldur en var fyrir áramót.“ Rekstrarkostnaður bíls eykst hjá sumum en dregst saman hjá öðrum.vísir/anton brink Runólfur segir þetta ósanngjart þar sem stærri bílar slíti vegum frekar. Runólfur hafði gagnrýnt þetta fyrir breytingu og telur enn að þetta beri að skoða. „Það slær mann aðeins að þeir sem eiga orkufreka bíla, sem eyða miklu eldsneyti, að þeir séu að njóta góðs af breytingunni,“ segir Runólfur.
Skattar, tollar og gjöld Umferð Bensín og olía Neytendur Bílar Kílómetragjald Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Fleiri fréttir Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira