Fiðluleikari kærir Will Smith fyrir kynferðislega áreitni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. janúar 2026 23:37 Brian King Joseph lék á fiðlu í tónleikaferðalagi Smith þegar meint áreitni mun hafa átt sér stað. Vísir/Samsett Fiðluleikarinn Brian King Joseph hefur kært leikarann og tónlistarmanninn Will Smith fyrir kynferðislega áreitni, ólögmæta uppsögn og hefndaraðgerðir.
Joseph gerði áður garðinn frægan í hæfileikakeppninni America's got talent og var ráðinn til að taka þátt í tónleikaferðalagi Smith, Based on a True Story: 2025, eftir að hafa spilað í afleysingum haustið 2024. Samkvæmt umfjöllun Guardian kom það fram í kæru Joseph að í mars 2025 hafi taska hans og lykill að hótelherbergi horfið í Las Vegas, þar sem hann hafði spilað á tónleikum fáum klukkustundum áður. Töskunni og lyklinum var skilað en seinna sama kvöld kveðst Joseph hafa komið að blautþurrkum og alnæmislyfjum merktum öðrum einstaklingi á herbergi sínu, auk miða sem á stóð: „Brian, ég kem aftur ekki seinna en 5:30, bara við<3, Stone F.“ Joseph segist hafa dregið þá ályktun að „óþekktur einstaklingur myndi brátt snúa aftur í herbergið hans til að stunda kynlíf“ með honum. Í kærunni segir einnig að stjórnendur tónleikaferðalagsins hafi verið „einu einstaklingarnir með aðgang“ að herberginu hans. Joseph segir að hann hafi tilkynnt atvikið til öryggisvarða hótelsins og fulltrúa Smith og tilkynnt það til lögreglu. Joseph heldur því fram að síðar hafi einn af stjórnendunum „smánað“ hann vegna atviksins og samningi hans hafi verið sagt upp, og ýjað að því að hann hefði skáldað atvikið. Vegna þessa kveðst hann þjást af áfallastreituröskun og hafa orðið fyrir fjárhagstjóni. Will Smith og lögmannateymi hans hafna ásökununum og segja þær tilhæfulausar.
Hollywood Bandaríkin Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira