Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Atli Ísleifsson skrifar 5. janúar 2026 07:18 Gera má ráð fyrir frosti tveimur til átta stigum. Vísir/Vilhelm Víðáttumikið hæðakerfi suður í hafi veldur hæðahrygg sem teygir sig yfir landið og verða almennt vindar hægir í dag en þó einhver strekkingur norðvestantil. Búast má við snjókomu eða éljum um landið norðan- og austanvert.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Það verður úrkomulítið suðvestantil og léttir víða til um vestanvert landið síðdegis. Gera má ráð fyrir frosti tveimur til átta stigum en að hiti verði um og yfir frostmark við Suður- og Vesturströndina að deginum. Herðir á frosti á morgun. „Á þriðjudag verða áfram hægir vindar og þurrt að mestu, en stöku él um landið norðanvert og kaldi eða strekkingur austast.Á miðvikudag nálgast lægðardrag landið úr suðvestri sem ber með sér örlítið hlýrra loft. Þá er útlit fyrir að smálægðir taki að myndast suður af landinu, á mörkum misheitra loftmassa. Lægðirnar valda snjókomu eða éljagangi um landið sunnan- og austanvert þegar skil þeirra ganga inn á land á miðvikudagskvöld og fimmtudag, en þá kólnar aftur. Þá má einnig búast við hvössum vindstrengjum við suðurströndina ásamt skafrenningi, einkum á fjallvegum og inn til landsins,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Fremur hæg norðlæg átt, en strekkingur með austurströndinni. Él norðaustantil, en annars bjart með köflum. Vaxandi austan- og suðaustanátt vestantil með kvöldinu með allhvössum eða hvössum vindstrengjum norðvestantil. Frost 2 til 13 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á miðvikudag: Ákveðin austlæg átt, en hægari norðaustantil. Víða él eða snjókoma, en slydda syðst á landinu og þurrt að mestu vestantil fram eftir degi. Hiti nærri frostmarki við suðurströndina, en annars talsvert frost. Á fimmtudag: Austlægar eða norðaustlægar áttir ogvíða dálítil él, en snjókoma eða slydda sunnantil. Úrkomulaust að kalla á Norðurlandi. Dregur heldur úr frosti og hiti um og yfir frostmark við Suðurströndina. Á föstudag og laugardag: Útlit fyrir norðlægar eða norðaustlægar áttir og snjókomu með köflum eða él, einkum fyrir norðan, en lengst af úrkomulaust að kalla á Suður- og Vesturlandi. Kólnandi veður. Á sunnudag: Útlit fyrir ákveðinn norðan- og norðaustan strekking eða allhvassan vind með snjókomu, einkum norðvestan til og síðar austantil.
Veður Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fleiri fréttir Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Sjá meira