Fyrst á Íslandi til að gefa tuttugu stoðsendingar í einum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2026 14:01 Abby Beeman setti nýtt met í sigurleik Grindavíkur í Garðabænum í gær. Vísir/Anton Brink Abby Beeman setti í gærkvöldi nýtt stoðsendingamet í efstu deild kvenna í körfubolta og í raun sló hún karlametið líka. Enginn hefur nú gefið fleiri stoðsendingar í efstu deild í körfubolta á Íslandi. Í fyrsta leiknum á nýju ári þá gaf Beeman 20 stoðsendingar á félaga sína í Grindavíkurliðinu í sextán stiga útisigri á Stjörnunni í Garðabænum, 99-83. Beeman skoraði sjálf 20 stig og var því með 20+20 tvennu sem er mögnuð tölfræði. Með þessum tuttugu stoðsendingum bætti hún kvennametið um tvær stoðsendingar og karlametið um eina stoðsendingu. Flestar stoðsendingar í einum leik: 1. Abby Beeman Grindavík 20 2. Brittanny Dinkins Keflavík 18 2. Helena Sverrisdóttir Haukum 18 4. Maddie Sutton Þór Ak 17 4. Brittanny Dinkins Keflavík 17 4. Helena Sverrisdóttir Haukum 17 4. Danielle Rodriguez Stjörnunni 17 4. Reshea Bristol Keflavík 17 4. Jessica Gaspar KFÍ 17 Fyrir leikinn í gær áttu þær Brittanny Dinkins og Helena Sverrisdóttir metið saman en báðar náðu þær að gefa 18 stoðsendingar í einum leik, Helena fyrst með Haukum á móti Grindavík árið 2006 og Dinkins svo með Keflavík á móti Stjörnunni 2017. Jessica Gaspar og Reshea Bristol áttu metið áður en Helena sló það um eina stoðsendingu fyrir meira en tuttugu árum síðan. Karlametið er 19 stoðsendingar sem hann gaf fyrir Þór í Þorláksjöfn á móti Keflavík í nóvember 2022 en hann bætti þá næstum því 26 ára gamalt met KR-ingsins David Edwards frá árinu 1996. Beeman sló metið þegar hún fann Þóreyu Teu Þorleifsdóttur sem setti niður þriggja stiga körfu þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af leiknum. Hún átti síðan lokastoðsendingu sína á Ólöfu Rún Óladóttur stuttu síðar. Beeman átti þessar tuttugu stoðsendingar á sex mismunandi leikmenn eða þær Þóreyju Teu Þorleifsdóttur (5), Ellen Nystrom (4), Farhiya Abdi (4), Isabellu Ósk Sigurðardóttir (3), Ólöfu Rún Óladóttir (2) og Ólöfu Maríu Bergvinsdóttur (2). Beeman kom alls með beinum hætti að 64 stigum í leiknum, 20 stigum með því að skora sjálfur og 44 stigum að auki í gegnum stoðsendingar sínar. Tuttugu stoðsendingar Abby Beeman á móti Stjörnunni 6. janúar 2026: Fyrsti leikhlutinn (4 stoðsendingar) 1) Á Isabellu Ósk í tveggja stiga skoti 2) Á Isabellu Ósk í tveggja stiga skoti 3) Á Ólöfu Rún í þriggja stiga skoti 4) Á Ólöfu Maríu í þriggja stiga skoti Annar leikhlutinn (2 stoðsendingar) 5) Á Þóreyju Teu í tveggja stiga skoti 6) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti Þriðji leikhlutinn (8 stoðsendingar) 7) Á Ellen Nystrom í tveggja stiga skoti 8) Á Farhiya Abdi sem fékk vítaskot og skoraði 1 stig 9) Á Ellen Nystrom sem fékk vítaskot og skoraði 1 stig 10) Á Isabellu Ósk sem fékk vítaskot og skoraði 2 stig 11) Á Ellen Nystrom sem fékk vítaskot og skoraði 2 stig 12) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti 13) Á Ólöfu Maríu í tveggja stiga skoti 14) Á Ellen Nystrom í tveggja stiga skoti Fjórði leikhlutinn (6 stoðsendingar) 15) Á Farhiya Abdi í tveggja stiga skoti 16) Á Farhiya Abdi í tveggja stiga skoti 17) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti 18) Á Farhiya Abdi í tveggja stiga skoti 19) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti 20) Á Ólöfu Rún í tveggja stiga skoti Bónus-deild kvenna UMF Grindavík Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira
Í fyrsta leiknum á nýju ári þá gaf Beeman 20 stoðsendingar á félaga sína í Grindavíkurliðinu í sextán stiga útisigri á Stjörnunni í Garðabænum, 99-83. Beeman skoraði sjálf 20 stig og var því með 20+20 tvennu sem er mögnuð tölfræði. Með þessum tuttugu stoðsendingum bætti hún kvennametið um tvær stoðsendingar og karlametið um eina stoðsendingu. Flestar stoðsendingar í einum leik: 1. Abby Beeman Grindavík 20 2. Brittanny Dinkins Keflavík 18 2. Helena Sverrisdóttir Haukum 18 4. Maddie Sutton Þór Ak 17 4. Brittanny Dinkins Keflavík 17 4. Helena Sverrisdóttir Haukum 17 4. Danielle Rodriguez Stjörnunni 17 4. Reshea Bristol Keflavík 17 4. Jessica Gaspar KFÍ 17 Fyrir leikinn í gær áttu þær Brittanny Dinkins og Helena Sverrisdóttir metið saman en báðar náðu þær að gefa 18 stoðsendingar í einum leik, Helena fyrst með Haukum á móti Grindavík árið 2006 og Dinkins svo með Keflavík á móti Stjörnunni 2017. Jessica Gaspar og Reshea Bristol áttu metið áður en Helena sló það um eina stoðsendingu fyrir meira en tuttugu árum síðan. Karlametið er 19 stoðsendingar sem hann gaf fyrir Þór í Þorláksjöfn á móti Keflavík í nóvember 2022 en hann bætti þá næstum því 26 ára gamalt met KR-ingsins David Edwards frá árinu 1996. Beeman sló metið þegar hún fann Þóreyu Teu Þorleifsdóttur sem setti niður þriggja stiga körfu þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af leiknum. Hún átti síðan lokastoðsendingu sína á Ólöfu Rún Óladóttur stuttu síðar. Beeman átti þessar tuttugu stoðsendingar á sex mismunandi leikmenn eða þær Þóreyju Teu Þorleifsdóttur (5), Ellen Nystrom (4), Farhiya Abdi (4), Isabellu Ósk Sigurðardóttir (3), Ólöfu Rún Óladóttir (2) og Ólöfu Maríu Bergvinsdóttur (2). Beeman kom alls með beinum hætti að 64 stigum í leiknum, 20 stigum með því að skora sjálfur og 44 stigum að auki í gegnum stoðsendingar sínar. Tuttugu stoðsendingar Abby Beeman á móti Stjörnunni 6. janúar 2026: Fyrsti leikhlutinn (4 stoðsendingar) 1) Á Isabellu Ósk í tveggja stiga skoti 2) Á Isabellu Ósk í tveggja stiga skoti 3) Á Ólöfu Rún í þriggja stiga skoti 4) Á Ólöfu Maríu í þriggja stiga skoti Annar leikhlutinn (2 stoðsendingar) 5) Á Þóreyju Teu í tveggja stiga skoti 6) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti Þriðji leikhlutinn (8 stoðsendingar) 7) Á Ellen Nystrom í tveggja stiga skoti 8) Á Farhiya Abdi sem fékk vítaskot og skoraði 1 stig 9) Á Ellen Nystrom sem fékk vítaskot og skoraði 1 stig 10) Á Isabellu Ósk sem fékk vítaskot og skoraði 2 stig 11) Á Ellen Nystrom sem fékk vítaskot og skoraði 2 stig 12) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti 13) Á Ólöfu Maríu í tveggja stiga skoti 14) Á Ellen Nystrom í tveggja stiga skoti Fjórði leikhlutinn (6 stoðsendingar) 15) Á Farhiya Abdi í tveggja stiga skoti 16) Á Farhiya Abdi í tveggja stiga skoti 17) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti 18) Á Farhiya Abdi í tveggja stiga skoti 19) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti 20) Á Ólöfu Rún í tveggja stiga skoti
Flestar stoðsendingar í einum leik: 1. Abby Beeman Grindavík 20 2. Brittanny Dinkins Keflavík 18 2. Helena Sverrisdóttir Haukum 18 4. Maddie Sutton Þór Ak 17 4. Brittanny Dinkins Keflavík 17 4. Helena Sverrisdóttir Haukum 17 4. Danielle Rodriguez Stjörnunni 17 4. Reshea Bristol Keflavík 17 4. Jessica Gaspar KFÍ 17
Tuttugu stoðsendingar Abby Beeman á móti Stjörnunni 6. janúar 2026: Fyrsti leikhlutinn (4 stoðsendingar) 1) Á Isabellu Ósk í tveggja stiga skoti 2) Á Isabellu Ósk í tveggja stiga skoti 3) Á Ólöfu Rún í þriggja stiga skoti 4) Á Ólöfu Maríu í þriggja stiga skoti Annar leikhlutinn (2 stoðsendingar) 5) Á Þóreyju Teu í tveggja stiga skoti 6) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti Þriðji leikhlutinn (8 stoðsendingar) 7) Á Ellen Nystrom í tveggja stiga skoti 8) Á Farhiya Abdi sem fékk vítaskot og skoraði 1 stig 9) Á Ellen Nystrom sem fékk vítaskot og skoraði 1 stig 10) Á Isabellu Ósk sem fékk vítaskot og skoraði 2 stig 11) Á Ellen Nystrom sem fékk vítaskot og skoraði 2 stig 12) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti 13) Á Ólöfu Maríu í tveggja stiga skoti 14) Á Ellen Nystrom í tveggja stiga skoti Fjórði leikhlutinn (6 stoðsendingar) 15) Á Farhiya Abdi í tveggja stiga skoti 16) Á Farhiya Abdi í tveggja stiga skoti 17) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti 18) Á Farhiya Abdi í tveggja stiga skoti 19) Á Þóreyju Teu í þriggja stiga skoti 20) Á Ólöfu Rún í tveggja stiga skoti
Bónus-deild kvenna UMF Grindavík Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira