„Mér finnst mjög erfitt að heyra þetta“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2026 14:32 Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, gæti verið án Hugo Ekitike í öðrum leiknum í röð. Getty/Fabrizio Carabelli Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði frá því á blaðamannafundi í dag að óvíst sé hvort framherjinn Hugo Ekitike geti spilað með Liverpool gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á Emirates-leikvanginum annað kvöld.
Ekitike, sem er markahæsti leikmaður Liverpool á þessu tímabili, missti af 2-2 jafnteflinu gegn Fulham á sunnudag vegna tognunar í vöðva. Hann hefur enn ekki æft fyrir ferð Liverpool til Norður-Lundúna, en framherjinn Alexander Isak er einnig frá vegna fótbrots og Mohamed Salah er síðan með landsliði Egyptalands á Afríkumótinu. „Hann hefur ekki æft með okkur enn sem komið er,“ sagði Slot á fréttamannafundi fyrir leikinn. Sjáum til hvort hann geti æft með okkur í dag „Við skulum sjá til hvort hann geti æft með okkur í dag. Fyrir tveimur eða þremur dögum, þegar við spiluðum gegn Fulham, sagði ég að hann yrði ekki lengi frá en það er erfitt því leikirnir koma svo hratt. Hann er á mörkunum, kannski getur hann æft með liðinu eða kannski tekur það einn eða tvo daga í viðbót,“ sagði Slot. Jafntefli Liverpool á Craven Cottage þýðir að liðið er nú taplaust í níu leikjum í öllum keppnum og komið upp í fjórða sæti deildarinnar. Slot hefur þó sætt gagnrýni fyrir slaka frammistöðu liðsins, en Liverpool hefur tapað stigum í síðustu tveimur leikjum sínum. Höfum klárlega gert tveimur jafnteflum of mikið „Við erum taplausir í níu leikjum en við höfum klárlega gert tveimur jafnteflum of mikið,“ sagði Slot. „Hvar stöndum við? Ég held ég hafi sagt það margoft að svarið við þeirri spurningu er að við erum ekki þar sem við viljum vera, en mér finnst við vera með mjög hæfileikaríkan hóp. Ef allir eru heilir og klárir, þá held ég að við getum gert sérstaka hluti,“ sagði Slot. „Ég held að við höfum líka sýnt það á þessu tímabili því við höfum unnið nokkra mjög glæsilega sigra, en við höfum líka gert óspennandi jafntefli og tapað leikjum. Við höfum ekki náð stöðugleika en við höfum þegar sigrað nokkur mjög góð lið, svo það segir manni að hæfileikarnir séu klárlega til staðar en stöðugleikinn ekki,“ sagði Slot. Ég myndi nota önnur orð Um gagnrýnina á leikstíl Liverpool bætti Slot við: „Mér finnst mjög erfitt að heyra þetta en það er ekki þannig að ég sé algjörlega ósammála. Ég myndi nota önnur orð og ég myndi taka ákveðna hluti til greina. Ég vil vinna eins marga titla og ég get en ég held að ég sé líka þekktur fyrir það að liðin mín reyna alltaf að spila sóknarbolta. Ég get aðeins sagt að við erum enn að reyna að gera það,“ sagði Slot.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira