Gervigreind Musk sögð hafa búið til kynferðislegar myndir af ellefu ára gömlum börnum Kjartan Kjartansson skrifar 8. janúar 2026 11:29 Undir stjórn Elons Musk, eins ríkasta manns í heimi, (t.h.) er samfélagsmiðillinn X orðinn einn vinsælasti vettvangur kynferðislegs efnis af börnum á netinu. AP Bresk samtök sem berjast gegn barnaníði á netinu segjast hafa fundið kynferðislegar myndir af stúlkum allt niður í ellefu ára gamlar sem virðast hafa verið búnar til af gervigreindarforriti Elons Musk.
Notendur samfélagsmiðlisins X, sem er í eigu Musk, hafa undanfarið dundað sér við að láta Grok, spjallmenni miðilsins, framleiða fyrir sig kynferðislegar myndir af konum og börnum. Myndirnar birtast í færslum á X. Fyrirtækið hefur ekki brugðist við fyrirspurnum fjölmiðla um það og aðeins hvatt notendur sínar til þess að nota spjallmennið ekki í þessum tilgangi. Fulltrúi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hefur lýst framferði X sem lögbroti og franskur saksóknari rannsakar hundruð tilkynninga um að Grok hafi verið notað til þess að gera kynferðislegar myndir af konum og stúlkum þar í landi. Yfirvöld hafa að öðru leyti verið hæg að bregðast nokkuð við því að X sé nú orðinn einn vinsælasti vettvangur barnaníðsefnis á netinu. Koma kynferðislegum gervigreindarmyndum af börnum í meginstrauminn Nú segist Neteftirlitssjóðurinn (e. Internet Watch Foundation), bresk samtök sem beita sér gegn barnaníðsefni á netinu, að greinendur þeirra hafi fundið kynferðislegt myndefni af stúlkum á bilinu ellefu til þrettán ára sem notendur á svonefndum djúpvef halda fram að Grok hafi útbúið fyrir þá. Grok hafi meðal annars tekið raunverulegar myndir af börnum og breytt þeim þannig að þau sé ber að ofan eða sýnd á kynferðislegan hátt annan. Ngair Alexander frá samtökunum segir við breska ríkisútvarpið að Grok sé að færa kynferðislegar gervigreindar börnum inn í meginstrauminn á netinu. Efnið sem spjallmennið framleiði falli undir skilgreiningar breskra hegningarlaga á vægustu brotum af þessu tagi. Hins vegar væri dæmi um að illa innrættir einstaklingar tækju slíkar myndir sem Grok framleiddi og notuðu annað gervigreindarforrit til þess að búa til grófari myndir af börnum. Setti lík konu sem ICE skaut til bana í sundföt Dæmi eru um að notendur Grok láti sér ekki nægja að fá spjallmennið til þess að hlutgera konur með því að fjarlægja föt þeirra af myndum og setja þær í bikíní heldur hefur gervigreindin orðið við beiðnum um að skreyta undirfötin með hakakrossum nasista. Undir stjórn Musk hefur X orðið að einum helsta vettvangi nýnasista, hvítra þjóðernissinna og annarra öfgahægrimanna. Blaðamenn Vísis staðfestu sjálfir í morgun að Grok hefði breytt raunverulegri mynd af konu sem fulltrúi bandaríska innflytjendaeftirlitsins ICE skaut til bana í bíl sínum í Minneapolis gær þannig að hún virtist klædd í bikíní einum fata, liggjandi látin í framsæti bifreiðarinnar. Vísir sendi Persónuvernd fyrirspurn um hvort henni hefðu borist tilkynningar um að Grok hefði framleitt kynferðislegar myndir af íslenskum konum eða börnum en svar hefur enn ekki borist við henni. Tæplega fjórðungur sagðist nota X, sem þá hét Twitter, í könnun Gallup um samfélagsmiðlanotkun Íslendinga árið 2021.
X (Twitter) Bretland Samfélagsmiðlar Gervigreind Kynferðisofbeldi Stafrænt ofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira